- What: Study shows AI's impact on employment in the financial sector
- Impact: Firms in Iceland plan to increase staff despite AI adoption
Ríflega fjórir af hverjum fimm stjórnendum íslenskra fjármálafyrirtækja telja að gervigreind muni hafa mikil áhrif á samkeppnisumhverfið og álíka fjöldi sér tækifæri fólgin í þeirri þróun á næstu árum. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar Gallup sem fjallað var um á fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands undir yfirskriftinni Störfin sem hverfa og störfin sem verða til . Talsvert hefur verið fjallað um hver áhrif gervigreindar verði á vinnumarkaði í framtíðinni og hafa sumir sérfræðingar á þessu sviði spáð verulegri fækkun starfa. Það virðist þó ekki verða raunin í fjármálageiranum hér á landi sem stendur þar sem samkvæmt könnun Gallup þá stefna fleiri íslensk fjármálafyrirtækja á að fjölga fólki, eða 44%, en 12,5% stefna á að fækka starfsfólki á næstu fimm árum. Þetta er í takt við þróunina undanfarin ár en eftir mikla fækkun starfa í krafti hagræðingar, fyrst og fremst vegna tækniframfara og sjálfvirknivæðingar, þá hefur starfsmönnum fjármálafyrirtækja tekið að fjölga lítillega á ný. Hefur starfsmönnum viðskiptabankanna til að mynda farið fjölgandi frá árinu 2022 en það eru fyrst og fremst sérfræðistörf tengd eftirlitseiningum og á sviði upplýsingatækni. Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, bendir á að líklega sé um fimmtungur starfsmanna fjármálageirans í dag í störfum á sviði upplýsingatækni. „Þessi tækni er í örri þróun og ljóst má vera að tækifærin eru mýmörg. Hins vegar á enn eftir að koma í ljóst hve mikil áhrifin verða og með hvaða hætti. Stundum er talað um í tæknibyltingum að áhrifin til skemmri tíma séu ofmetin en vanmetin til lengri tíma.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .