Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Snorri: Íslenskan ekki lykillinn að samfélaginu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.3.2026 | 16:55 Snorri: Íslenskan ekki lykillinn að samfélaginu Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins. mbl.is/Karítas Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Ráðherra kallaði eftir afsökunarbeiðni þingmanns „Ekki hægt að „vippa upp 90 daga neyðarbirgðum“ Logi tekur ekki endilega undir áhyggjur Bubba Íhuga að senda flugvél til Mið-Austurlanda » Fleiri tengdar fréttir Íslenska Logi tekur ekki endilega undir áhyggjur Bubba Setja 200 milljónir til að styðja við nýjungar Segir Björk hafa rangt fyrir sér „Viðkomandi var búinn að vinna á Íslandi í mánuð“ Gera þá kröfu að allt starfsfólk tali íslensku » Fleiri tengdar fréttir Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir íslenska tungu ekki vera þann lykil að íslensku atvinnulífi og samfélagi sem margir vilja meina að hún sé. Staðreyndin sé sú að minnihluti þeirra sem hingað flytja leggi á sig að læra tungumálið og Snorri telur að því þurfi að breyta. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir frá Flokki fólksins telur sömuleiðis að það þurfi að senda skýr skilaboð til innflytjenda um að það að læra íslensku sé nauðsynlegt til að búa hér. Þetta kom fram í sérstakri umræðu um stöðu íslenskunnar á Alþingi í dag. Frétt af mbl.is Ísland stendur sig verst Tilhneiging til klisja Í upphafi ræðu sinnar þakkaði Snorri fyrir góða umræðu en sagði að sumt í henni hefði tilhneigingu til að verða klisjukennt. „Eins og t.d. þegar sagt er að íslenskan sé lykill að atvinnulífi og lykill að samfélagi fyrir fólk, vegna þess að raunin er sú á Íslandi núna að íslenskan er ekki þessi lykill sem hún ætti þó að vera. Það er gjörsamlega eðlilegt að menn lifi hér og starfi algerlega án þess að sjá þörf fyrir að læra íslensku,“ sagði Snorri og bætti við: „Það er vandinn. Við getum ekki haldið áfram að segja að íslenska sé svona mikill lykill. Hvorki þegar menn fá ótímabundið atvinnuleyfi né þegar menn fá ríkisborgararétt á Íslandi er gerð alvarleg krafa um íslenskukunnáttu. Það er lítil krafa gerð vegna ríkisborgararéttar og engin krafa vegna atvinnuleyfis. Þetta er ekki meiri lykill að samfélaginu en svo að aðeins fimmti hver útlendingur sem hingað hefur flust hefur lagt það á sig að læra íslensku. Hún er því ekki þessi lykill að samfélaginu sem hún ætti þó að vera.“ Frétt af mbl.is Skilaboðin að það sé í lagi að tala ekki íslensku Kröfur af hinu illa Snorri telur að um ákveðinn vítahring og spíral sé að ræða og að hann verði óafturkræfur fái hann að halda áfram mikið lengur. „Viðhorfið í þessari umræðu um íslenskuna hefur lengi verið að kröfur séu af hinu illa og þær séu vafasamar og afar vandmeðfarnar. En ég held, eins og staðan er orðin og ef þessi innflytjendastefna heldur áfram, að sú tíð sé liðin. Menn verði einfaldlega að fara að gera kröfur um íslenskukunnáttu,“ sagði hann og bætti við að kröfurnar mættu fara saman við framboð á íslenskuþjálfun og íslenskukennslu. „Hvatar og kröfur og framboð af stuðningi er leiðin fram á við. Annars held ég að við séum áfram að stefna í mjög slæma átt,“ sagði Snorri. Frétt af mbl.is Ísland á hættulegum stað vegna vanrækslu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins. mbl.is/Eyþór Á Íslandi tölum við íslensku Á eftir Snorra steig upp í pontu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir frá Flokki fólksins en hún beindi sjónum sínum einnig að stöðu íslenskunnar meðal innflytjenda. „Það kann auðvitað að vera að margir séu ragir við að nota tungumálið enda finnst mörgum það flókið. En þá verðum við að hjálpa þessu fólki að yfirstíga þessa hindrun og hvetja það og hrósa og umfram allt tala íslensku við það,“ sagði Kolbrún. „Við verðum einnig að senda skilaboð til fólks af erlendum uppruna sem ætlar að búa á Íslandi til frambúðar um að nauðsynlegt sé að læra tungumálið ef það á að geta notið sín til fulls. Íslenskukunnáttan mun auka möguleika á framgangi í íslensku samfélagi.“ Þá sagði hún að markmiðið ætti að vera skýrt: „Á Íslandi tölum við íslensku og Íslendingar upp til hópa vilja fá að tala málið sitt í sínu eigin heimalandi, hvort sem það er á veitingastöðum eða í verslunum.“ Tengdar fréttir Alþingi Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Ráðherra kallaði eftir afsökunarbeiðni þingmanns „Ekki hægt að „vippa upp 90 daga neyðarbirgðum“ Logi tekur ekki endilega undir áhyggjur Bubba Íhuga að senda flugvél til Mið-Austurlanda » Fleiri tengdar fréttir Íslenska Logi tekur ekki endilega undir áhyggjur Bubba Setja 200 milljónir til að styðja við nýjungar Segir Björk hafa rangt fyrir sér „Viðkomandi var búinn að vinna á Íslandi í mánuð“ Gera þá kröfu að allt starfsfólk tali íslensku » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Átta Íslendingar keppa á HM í Narvík Ísland standi frammi fyrir nýjum áskorunum Íslendingur í Barein: „Maður vonar að þessu fari að linna“ Snorri: Íslenskan ekki lykillinn að samfélaginu Ný forysta verður kosin um helgina Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Máttu fara í húsleit hjá Lyf og heilsu „Ekki hægt að „vippa upp 90 daga neyðarbirgðum“ Íranar í myrkrinu Hækkanir muni hafa veruleg áhrif Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Forsendurnar riða til falls Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Meiri háttar líkamsárás til rannsóknar Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Átta Íslendingar keppa á HM í Narvík Ísland standi frammi fyrir nýjum áskorunum Íslendingur í Barein: „Maður vonar að þessu fari að linna“ Snorri: Íslenskan ekki lykillinn að samfélaginu Ný forysta verður kosin um helgina Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Forsendurnar riða til falls Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Forsendurnar riða til falls Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Meiri háttar líkamsárás til rannsóknar Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“

Share this article