Innlent | mbl | 11.3.2026 | 19:00 Vænir Eirík um slagsíðu í svari á Vísindavefnum Eiríki og Snorra þykir báðum vænt um íslenskuna en eru ósammála um hvað sé henni fyrir bestu. Samsett mynd Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Íslenska Íslenska mest töff tungumál í heimi Snorri: Íslenskan ekki lykillinn að samfélaginu Logi tekur ekki endilega undir áhyggjur Bubba Setja 200 milljónir til að styðja við nýjungar Segir Björk hafa rangt fyrir sér » Fleiri tengdar fréttir Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, virðist telja að pólitískar skoðanir Eiríks Rögnvaldssonar, prófessors emeritus í íslenskri málfræði, hafi haft áhrif á svar hans á Vísindavefnum um möguleg áhrif EES-samstarfsins og hugsanlegrar aðildar að Evrópusambandinu á íslenska tungu. Í umræddu svari nefnir Eiríkur dæmi um jákvæð áhrif EES-samstarfsins á íslenskuna og segir ljóst að aðild að ESB yrði síst til að veikja stöðu tungumálsins. Snorri telur hins vegar að þar sé litið fram hjá veigamiklum þáttum á borð við áhrif EES- og ESB-aðildar á fólksflutninga. Báðir hafa Snorri og Eiríkur látið sig stöðu íslenskunnar varða og verið iðnir við að tjá sig um hana á opinberum vettvangi. Gjarnan hafa þeir verið ósammála um hver besta leiðin til að tryggja sterka stöðu málsins sé og verið ófeimnir við að setja út á málflutning hvors annars. Frétt af mbl.is „Mér finnst þetta bara óheiðarlegt“ Frétt af mbl.is Segir ásakanir Snorra óheiðarlegar EES styrkt íslenska tungu Dæmi um þennan ágreining er Facebook-færsla sem Snorri birti í kvöld þar sem hann reifar svar Eiríks á Vísindavef Háskóla Íslands við spurningunni „Hefur EES-aðild Íslands einhver áhrif á íslenska tungu og mundi eitthvað breytast ef við færum í ESB?“ á kaldhæðinn hátt. Í svarinu segir Eiríkur meðal annars að í krafti aðildar að Evrópska efnahagssvæðinu taki Íslendingar þátt í mennta- og vísindaáætlunum Evrópusambandsins og að íslensk menning og íslensk tunga hafi notið þess á ýmsan hátt. Þá bendir hann á að ef íslenska væri opinbert mál innan Evrópusambandsins myndi það tákna að fulltrúar landsins gætu talað íslensku á vettvangi þess og fundir yrðu túlkaðir milli íslensku og annarra mála. „Í raun hefur aðildin að EES þegar styrkt tunguna með starfsemi þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins þar sem stór hluti af lögum og reglum ESB er þýddur á íslensku. Hvaða skoðun sem fólk hefur á inngöngu Íslands í Evrópusambandið er ljóst að aðild að sambandinu yrði síst til þess að veikja stöðu íslenskunnar – þvert á móti má færa að því góð rök að staða tungunnar myndi styrkjast verulega við aðild,“ segir í svari Eiríks. Opinber afstaða til ESB legið fyrir „Vissulega hefur opinber jákvæð afstaða Eiríks til ESB legið fyrir – bæði út frá meintum hagsmunum íslenskunnar og einnig öðrum þáttum – löngu áður en honum var falið að veita vísindalegt svar við þessari spurningu á vefinn,“ segir Snorri um þetta svar og bætir við: „Þar sem þetta er hins vegar ópólitískur fróðleiksmoli byggir Eiríkur málflutning sinn vitaskuld ekki aðeins á sinni eigin persónulegu skoðun. Hann vitnar til annars íslensks fræðimanns sem hefur einnig lagt faglegt mat á málið, Gauta Kristmannssonar. Vissulega vill svo til að Gauti kemst að sömu niðurstöðu og Eiríkur, að íslenskunni sé best borgið innan Evrópusambandsins.“ Í þessu samhengi bendir Snorri á að Gauti hafi áður tjáð sig um mögulega kosti aðildar að Evrópusambandinu við ýmis tilefni og tekur sem dæmi fyrirsögn af DV frá árinu 2024: „Gauti segir að ef illa fer í næstu eldgosum væri gott að vera í skjóli ESB og evrunnar“. Eirúkur telur ólíklegt að ESB-aðild myndi hafa neikvæð áhrif á íslenskuna. Ljósmynd/ESB Sjálfur bent á áhrif fólksflutninga „Hinn hluti spurningarinnar á Vísindavefnum lýtur að áhrifum EES-aðildarinnar hingað til á íslenska tungu,“ heldur Snorri áfram. „Spyrjandinn mun hafa varpað öndinni léttar eftir lestur ópólitíska fróðleiksmolans, því að þar veitir Eiríkur Rögnvaldsson býsna hughreystandi svar: „Í raun hefur aðildin að EES þegar styrkt tunguna með starfsemi þýðingarmiðstöðvar utanríkisráðuneytisins þar sem stór hluti af lögum og reglum ESB er þýddur á íslensku.““ Telur Snorri að þarna horfi Eiríkur fram hjá öðrum mögulegum áhrifum EES-samstarfsins á íslenska tungu sem hann segir Eirík þó sjálfan hafa rakið í viðtali á mbl.is undir lok síðasta árs. Í viðtalinu sagði Eiríkur að það væri raunhæf staða að enska verði ráðandi í samfélaginu eftir nokkra áratugi, verði kennsla íslensku sem annars máls ekki aukin þar sem helmingur vinnumarkaðarins verði að líkindum af erlendum uppruna um miðja öld. Frétt af mbl.is Enska ráðandi eftir nokkra áratugi að óbreyttu Ópólitískur fróðleiksmoli „Auðvitað væri, svona þannig séð, hægt að víkja að þessum áhrifum EES á íslenska tungu en í svona stuttum ópólitískum fróðleiksmola þarf að forgangsraða efnisatriðum. Augljóslega vegur þýðingarmiðstöð utanríkisráðuneytisins töluvert þyngra,“ skrifar Snorri. „Eftir mikla umhugsun er niðurstaða Eiríks á Vísindavefnum því sú að góð rök hnígi að því að staða tungunnar myndi styrkjast verulega við aðild. Þar gildir einu þótt sjálf hugsjónin með Evrópusambandinu sé vissulega að efnahagslegur og pólitískur samruni ríkjanna vegi þyngra en sérstaða þjóðríkjanna og þótt vissulega sé allt eins líklegt að aðstreymi innflytjenda geti aukist enn hingað til lands án þess að við munum geta haft nokkuð um það að segja. Slíkar málalengingar flækjast bara fyrir í svona ópólitískum fróðleiksmola.“ Tengdar fréttir Íslenska Íslenska mest töff tungumál í heimi Snorri: Íslenskan ekki lykillinn að samfélaginu Logi tekur ekki endilega undir áhyggjur Bubba Setja 200 milljónir til að styðja við nýjungar Segir Björk hafa rangt fyrir sér » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Rigas Zelli, staðan er 12:12 Segist saklaus Tryggvi og félagar í afar vænlegri stöðu Vænir Eirík um slagsíðu í svari á Vísindavefnum Deloitte rýmir skrifstofu sína í Dúbaí Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Erfið akstursskilyrði víða á heiðum Vilja aukið samstarf í varnarmálum Virða ber eignarrétt landeigenda Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Rigas Zelli, staðan er 12:12 Segist saklaus Tryggvi og félagar í afar vænlegri stöðu Vænir Eirík um slagsíðu í svari á Vísindavefnum Deloitte rýmir skrifstofu sína í Dúbaí Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Edition-málið aftur til saksóknara á næstu dögum Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu Tæki ekki langan tíma að ljúka viðræðum Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason