Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Myndir: Hús Ivönu Trump á Man­hattan selt með miklum af­slætti

  • What: Former Trump residence sold for $14 million
  • Impact: Highlights real estate transactions involving high-profile individuals
Read Full Article →

Borgarhús Ivönu Trump, fyrrverandi eiginkonu Donalds Trump, hefur verið selt á 14 milljónir dollara, eða tæplega ríflega 1,7 milljarð króna. Wall Street Journal greinir frá þessu. Ivana lést árið 2022 úr hjartaáfalli. Eftir andlátið var eignin sett á sölu og í byrjun var ásett verð 26,5 milljónir dollara eða 3,3 milljarðar króna. Treglega gekk að selja eignina og var ásett verð ítrekað lækkað. Var það komið niður í 17,9 milljónir dollara þegar eignin var loks seld á 14. Borgarhús Ivönu Trump í New York. Eric Trump sagði í samtali við Wall Street Journal árið 2022 að móðir hans hefði elskað húsið. Þar hafi hún haldið fjölmargar veislur fyrir fræga leikara og jafnvel konungsfólk. „Þetta hús endurspeglaði Ivönu Trump fullkomlega,“ sagði hann og vísaði til mikils íburðar í innréttingum. Bleiki marmarinn allsráðandi. Í bók sinni Raising Trump frá árinu 2017 lýsti Ivana eigin stíl sem sérviskulegum og ríkmannlegum. Ivana keypti húsið, sem er á Upper East Side í Manhattan í New York, fyrir um 2,5 milljónir dollara árið 1992. Húsið, sem er 810 fermetrar og á fimm hæðum, er staðsett á besta stað á Manhattan, milli Fifth Avenue og Madison Avenue. Setustofan í borgarhúsi Ivönu. Ivana keypti húsið um það leyti sem skilnaður hennar og Donalds Trump gekk í gegn. Hún fór í umfangsmiklar endurbætur á húsinu og var það hannað í mjög glysgjörnun stíl; mikið af bleikum marmara, gyllingum, kristal ljósakrónum og hlébarðamynstri. Börn þeirra hjóna, Donald Jr., Eric og Ivanka Trump, bjuggu í húsinu, á unglingsárum sínum. Bólstrað með hlébarðamynstri. Ivana Trump, sem fæddist í fyrrum Tékkóslóvakíu og starfaði áður sem fyrirsæta, gegndi einnig stjórnunarhlutverkum innan Trump-samsteypunnar á meðan hún var gift Donald Trump. Hún hafði meðal annars umsjón með byggingu og hönnun Trump Tower og Trump Plaza-hótelsins. Síðar á ævinni rak hún eigin tískulínu og átti einnig heimili í Flórída og Frakklandi. Ivana ásamt börnum sínum þeim Donald Jr., Eric og Ivanka Trump.

Share this article