- What: Six Flags sells seven amusement parks to EPR Properties
- Impact: Affects the ownership and operations of major amusement park chains
Six Flags Entertainment hefur samþykkt að selja sjö af skemmtigörðum sínum til fasteignafyrirtækisins EPR Properties fyrir 331 milljón dala. Þetta kemur fram á vef WSJ en þar segir að Six Flags muni nota söluandvirðið til að greiða niður skuldir. John Reilly, forstjóri Six Flags, segir að salan muni koma til með að einfalda eignasafn Six Flags, styrkja stöðu fyrirtækisins og hjálpa því að starfa með meiri aga í framtíðinni. Samningurinn felur í sér sölu á Valleyfair-garðinum í Minneapolis, Worlds of Fun í Kansas City, Michigan‘s Adventure í Grand Rapids, Schlitterbahn Waterpark í Galveston í Texas og Six Flags-görðunum í St. Louis, New York og Montreal. Sjá einnig Travis Kelce fjárfestir í Six Flags Þessir skemmtigarðar tóku samtals á móti 4,5 milljónum gesta á síðasta ári og námu tekjur samtals um 260 milljónum dala.