Innlent | mbl | 5.3.2026 | 19:27 Einróma ánægja með Kópavogsmódelið Bréfið er skrifað fyrir hönd allra leikskólastjórnenda í Kópavogi. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Allir leikskólastjórnendur í Kópavogi eru hæstánægðir með Kópavogsmódelið svokallaða. Það hafi gjörbreytt starfsaðstæðum barnanna sem þar dvelja og brugðist við þeim stórkostlega vanda sem blasti við starfsemi leikskóla í Kópavogi. Þetta kemur fram í opnu bréfi leikskólastjórnendanna til bæjarstjóra og bæjarstjórnar Kópavogs sem birtist á Vísi í morgun. „Takk fyrir að þora að fara þessa leið og bugast ekki, þrátt fyrir háværar gagnrýnisraddir sem oftar en ekki tala ekki af eigin reynslu heldur tala fyrir hagsmunum hóps foreldra sem virðist (miðað við nýtingu og svörun í könnunum) hvað ánægðastur með Kópavogsmódelið,“ segir í bréfinu. Gagnrýnin á módelið snúi helst að hárri gjaldskrá dvalargjalds umfram 30 gjaldfrjálsar stundir á viku. Leikskólastjórnendurnir segjast litlu vilja breyta og telja fyrirkomulag gjaldskrár eiga stærstan þátt í að samræma dvalartíma barna og vinnuframlag starfsfólks leikskóla. Frétt af mbl.is Umfangsmiklar breytingar í leikskólum í Kópavogi Árangurinn augljós Í bréfinu segir að árið 2022 hafi um 85% leikskólabarna verið með lengri daglegan dvalartíma en daglegt vinnuframlag starfsmanns í 100% starfi. Meðaldvalartími barna í Kópavogi sé nú á pari við vinnuframlag starfsmanns í 100 % starfi, þ.e.a.s. 7,2 klukkustundir á dag. „Kópavogsmódelið var frumkvöðull í bættu starfsumhverfi leikskóla og samanburður á milli sveitarfélaga sem hafa farið áþekkar leiðir er ekki tímabær, þar sem lítil reynsla er komin á breytingar víða annars staðar, en árangurinn er augljós í Kópavogi.“ Frétt af mbl.is Garðabær stefnir á Kópavogsleiðina Skammtímaveikindum fækkað Sagt er að starfsfólk hafi nú kost á að verja vetrar-, jóla- og páskafríum með sinni eigin fjölskyldu og sé ekki úrvinda í lok hvers vinnudags. Þá segir að skammtímaveikindum starfsfólks hafi fækkað og kennarar hafi aukin tækifæri til þess að sinna kjarasamningsbundnum undirbúningstíma sínum á þeim tíma sem færri börn eru í leikskólanum. „Kópavogsmódelið er alls ekki hagræðing í rekstri sveitarfélags, né er verið að velta kostnaði yfir á foreldra eða draga úr þjónustunni. Kópavogsmódelið er svar við neyðarkalli okkar sem höldum úti afar mikilvægri samfélagslegri þjónustu og menntun ungra barna og hefur stórbætt starfsemi og líðan þeirra sem lifa og hrærast í leikskólum bæjarins. Við stöndum saman vörð um þessa vel heppnuðu vegferð í átt að barnvænna samfélagi og bjóðum kennara og leiðbeinendur úr nærliggjandi sveitarfélögum hjartanlega velkomin í Kópavoginn,“ segir í lok bréfsins. Bréfið er skrifað fyrir hönd allra leikskólastjórnenda í Kópavogi. Frétt af mbl.is Tókust á um leikskólavandann Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » NATO eykur viðbúnaðarstig sitt Eyjamenn í fjórða sætið eftir nauman sigur Átta rofið 100 tilnefninga múrinn Öllum listaverkunum verður eytt Einróma ánægja með Kópavogsmódelið Umræðan Lífeyrir fylgi launum Réttlæti fyrir alla Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Sonur Khamenei „óásættanlegur“ Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Tilboðið olli mér miklum vonbrigðum Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Forsendurnar riða til falls Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » NATO eykur viðbúnaðarstig sitt Eyjamenn í fjórða sætið eftir nauman sigur Átta rofið 100 tilnefninga múrinn Öllum listaverkunum verður eytt Einróma ánægja með Kópavogsmódelið Umræðan Lífeyrir fylgi launum Réttlæti fyrir alla Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Beint: Enn annað ríki hótar þátttöku í stríðinu Máttu fara í húsleit hjá Lyf og heilsu Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Tilboðið olli mér miklum vonbrigðum Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Forsendurnar riða til falls Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“