Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aldrei gerst að dögum sé bætt við

Read Full Article →

Innlent | mbl | 6.3.2026 | 5:55 Aldrei gerst að dögum sé bætt við Ölduselsskóla hefur verið lokaður í nokkra daga á þessu skólaári. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, gerir ekki ráð fyrir því að skóladagar sem grunnskólanemendur hafa misst úr námi vegna framkvæmda út af myglu verði bættir upp. Ekki sé hefð fyrir því að lengja skólaárið vegna daga sem hafa fallið niður og myndi slíkt kalla á sérstaka samninga við kennara. Lög um grunnskóla kveða á um að skóladagar skulu eigi vera færri en 180 á hverju skólaári og að vikulegur kennslutími hvers nemanda í grunnskóla skuli að lágmarki vera 1.200–1.480 mínútur en það fer eftir aldri nemenda. „Heimilt er að víkja frá vikulegum lágmarkskennslutíma skv. 2. mgr. tímabundið, en nemendum skal þá tryggð viðbótarkennsla sem nemur frávikinu innan sama skólaárs,“ segir í lögunum. Frétt af mbl.is Myndir: „Jaðrar við ofbeldi gagnvart nemendunum“ Frétt af mbl.is Óljóst hvort dagarnir verði bættir upp Fullt af dögum falla niður ár hvert Eftir að mygla kom upp í skólahúsnæði Ölduselsskóla síðasta haust hefur þurft að loka skólanum í fjóra kennsludaga vegna framkvæmda og nemendur einu sinni sendir fyrr heim. Spurður hvort til standi að bæta nemendum þennan kennslutíma sem þeir hafa misst upp eins og grunnskólalög kveða á um segir Steinn: „Nú gerist það bara á hverju einasta ári að fullt af dögum falla niður í íslensku skólakerfi. Þetta getur verið vegna óveðurs, þetta getur verið vegna húsnæðis og það er ekki hefð fyrir því að skólaárið sé lengt. Það hefur aldrei gerst.“ Steinn Jóhannsson. Ljósmynd/Reykjavíkurborg Hann bætir við að sem betur fer séu kennarar og stjórnendur lausnamiðaðir og hafa komið til móts við nemendur til þess að geta klárað að fara yfir námsefni vetrarins. „Þetta getur þýtt að þeir setji meiri áherslu á ákveðið efni í ákveðinn tíma til að fara hraðar yfir það. Þannig að það eru bara notaðar mjög fjölbreyttar aðferðir til þess að koma til móts við nemendur þegar svona gerist,“ segir Steinn. „Við höfum ekki forsendur til að lengja skólaárið en vissulega eru stundum gerðar breytingar í skólum ef það stefnir í að við náum ekki að fara í einhver efni, þá horfa stjórnendur á skipulag skóladagatalsins, hvað getum við gert? Erum við að sleppa vettvangsferðum eða erum við að breyta einhverju öðru?“ Frétt af mbl.is Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög Myndi kalla á sérstaka samninga Það hefur sem sagt aldrei komið til greina að bæta einfaldlega við skóladögum í samræmi við þá sem nemendur hafa misst? „Nei. Þá þyrfti að semja sérstaklega um slíkt því það eru náttúrulega ákveðnir kjarasamningar við lýði. Og eins og ég segi þá höfum við bara margoft, íslenskt skólakerfi, þurft að glíma við að skóladagar hafa fallið niður í gegnum tíðina,“ segir Steinn. „Það geta verið náttúruhamfarir, það getur verið veðurfarið, það geta verið óvæntar framkvæmdir í húsnæði. Og svo má nú ekki gleyma því að þegar við glímdum við Covid þá urðu gríðarlega miklar breytingar og við vorum ekki að ná 180 dögum.“ Bitnaði það ekki á lærdómi nemenda? „Ég bara þori ekki að fullyrða um það. Vissulega hefur margt komið í ljós eftir Covid og ýmsar rannsóknir verið gerðar en ég hef trú á því að okkur hafi tekist að leysa áskorunina vel.“ Skólabókasafn Ölduselsskóla er nú nýtt sem kennslustofa. mbl.is/Eyþór Bætt upp með hraðari yfirferð Fjallað var um það á mbl.is síðasta haust að engar upplýsingar eða eftirlit væri með tímum sem falla niður í grunnskólum en dæmi eru um að fjöldi kennslustunda falli niður í hverjum mánuði vegna forfalla kennara. Spurður út í þetta segir Steinn: „Við vitum náttúrulega hvernig veikindahlutfall hjá starfsfólki borgarinnar er og þetta getur verið mismunandi eftir skólum en við reynum alltaf að útvega forfallakennara þegar börn eiga í hlut. Það hefur stundum reynst erfiðara í unglingadeildunum. Ég upplifði það sjálfur sem nemandi á sínum tíma, ef kennarinn var veikur í einhvern tíma þegar maður var orðinn unglingur eða í framhaldsskóla, þá bætti hann það upp með aðeins hraðari yfirferð eða fór yfir það sem hann taldi mikilvægara en annað og hagaði yfirferðinni með þeim hætti að nemendur náðu aðalatriðunum í því sem þurfti að fara yfir.“ Frétt af mbl.is Fylgjast ekki með tímunum sem falla niður í skólum Frétt af mbl.is 30 kennslustundir fallið niður á þremur mánuðum Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tölvupósturinn var ekki mistök Aldrei gerst að dögum sé bætt við Flugmóðurskip Írana í ljósum logum Bandaríkin muni snúa sér að Kúbu Íslenska mest töff tungumál í heimi Umræðan Lífeyrir fylgi launum Sögulegt fleipur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aldrei gerst að dögum sé bætt við Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Snjókoma og hvassviðri í kortunum Íslendingur í Barein: „Maður vonar að þessu fari að linna“ Mest lesið Í gær Í vikunni Snjókoma og hvassviðri í kortunum Íslenska mest töff tungumál í heimi Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Leigubílalögum breytt: Fyrra kerfi aftur tekið upp Hafnarsjóður greiðir risunum 91 milljón „Eignarrétturinn er friðhelgur“ Koma ekki í ár – endurkoma ekki útilokuð Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Nýjast á mbl.is » Tölvupósturinn var ekki mistök Aldrei gerst að dögum sé bætt við Flugmóðurskip Írana í ljósum logum Bandaríkin muni snúa sér að Kúbu Íslenska mest töff tungumál í heimi Umræðan Lífeyrir fylgi launum Sögulegt fleipur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Eignarrétturinn er friðhelgur“ Flugmóðurskip Írana í ljósum logum Logi tekur ekki endilega undir áhyggjur Bubba NATO: Tyrkland var skotmarkið Mest lesið Í gær Í vikunni Snjókoma og hvassviðri í kortunum Íslenska mest töff tungumál í heimi Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Leigubílalögum breytt: Fyrra kerfi aftur tekið upp Hafnarsjóður greiðir risunum 91 milljón „Eignarrétturinn er friðhelgur“ Koma ekki í ár – endurkoma ekki útilokuð Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga

Share this article