Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Methiti í sjónum kringum Ísland

Read Full Article →

Á mörgum mælistöðvum í hafinu í kringum Ísland hefur hitastig aldrei mælst hærra í vetrarleiðangri Hafrannsóknastofnunar. Árlegum vetrarleiðangri sjórannsókna á rannsóknaskipinu Þórunni Þórðardóttur lauk 17. febrúar. Markmið leiðangursins, sem tók 15 daga, var vöktun á umhverfisástandi hafsins við Ísland að vetrarlagi. Rannsóknarleiðangrar á borð við þennan hafa farið fram þrisvar til fjórum sinnum á ári frá 1970. Mælt á 100 stöðvum í kringum landið „Slík langtímavöktun er nauðsynleg til að unnt sé að meta og skilja árstíðabundinn breytileika, breytingar á milli ára og breytingar af völdum loftslags á umhverfi hafsins og vistkerfi þess,“ segir á vef Hafró . Hitastig í efstu 200 metrum sjávar var almennt hærra en langtímameðaltal. Líkt og áður segir hefur hitastigið ekki mælst hærra á mörgum stöðvum frá upphafi mælinga. Alls var mælt á 100 stöðvum í leiðangrinum. Hærri sjávarhiti gæti haft áhrif á veðurfar „Í leiðangrinum mældust því óvenju há gildi hita og seltu í Atlantssjónum sem á uppruna sinn langt suður í Atlantshafi. Þrátt fyrir mikinn breytileika milli ára hefur hitastig almennt verið að hækka síðan 1970. Hærra hitastig suður af Íslandi bendir til þess að Atlantssjórinn sé að endurheimta fyrri styrk eftir tímabil sem einkennist af lágum hita og seltu sem náðu lágmarki 2017.“ Frávik sem mælast í hita og seltu sjávar benda til mikils varmaflutnings til norðurs í hafinu. Það gæti haft áhrif á veðurfar á Íslandi sem og víðar og bent er á að meðallofthiti hefur aldrei mælst hærri hér á landi en í fyrra. Á vef Hafró segir að óvíst sé hvort varmaflutningurinn haldi áfram næstu árin eða fari minnkandi. Frekari rannsókna sé þörf.

Share this article