Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Viðvaranir gefnar út vegna mikils hvassviðris og hríðar

Read Full Article →

Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir við Breiðafjörð, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra í fyrramálið. Spáð er suðlægum áttum og vindhraða á bilinu 18 til 28 metrum á sekúndu, með hviðum að 40 metrum. Fyrsta viðvörunin tekur gildi klukkan 7 í fyrramálið við Breiðafjörð og sú síðasta á Norðurlandi vestra klukkan 9. Þar, líkt og á Vestfjörðum, verða viðvaranir í gildi langt fram eftir degi. Á vef Veðurstofunnar segir að víða megi búast við éljum og slæmu skyggni. Þá verða akstursskilyrði varasöm ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum.

Share this article