Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gular viðvaranir vegna páskahrets

Read Full Article →

Líklegt er að vegir verði ófærir og skyggni slæmt þegar sunnan- og suðaustanhríð gengur yfir landið frá því seint í kvöld fram undir miðnætti á morgun. Veðurstofan er búin að gefa út gular viðvaranir á öllum spásvæðum nema á Vestfjörðum, Austfjörðum, Suðausturlandi og höfuðborgarsvæðinu. Búist er við stormi alls staðar þar sem gular viðvaranir hafa verið gefnar út, nema á Suðurlandi þar sem vindhamurinn slagar þó langleiðina upp í storm. Viðbúið er að vindur fari yfir 30 eða jafnvel 35 metra á sekúndu í vindhviðum við fjöll. Veðurstofan spáir talsverðri eða mikilli snjókomu og segir líklegt að samgöngur truflist á afmörkuðum stöðum eða að vindhviður geti orðið hættulegar farartækjum. Hún telur sérstaklega upp Hellisheiði, Þrengslin, Kjalarnes, Hafnarfjall, sunnanvert Snæfellsnes og Mosfellsheiði. Þó er líklegt að fleiri vegir lokist. Veðrið rýkur fyrst upp á miðhálendinu og við Breiðafjörð seint í kvöld, síðan við Faxaflóa, á Suðurlandi og Ströndum og Norðurlandi eystra upp úr miðnætti. Síðan ganga viðvaranirnar í og úr gildi hver á fætur annarri þar til veðrið gengur niður á Austfjörðum seint annað kvöld. Nýjustu viðvaranir má alltaf sjá á vef Veðurstofunnar .

Share this article