- What: Fire at Orkubús Vestfjarða facility in Flateyri
- Impact: Power outage affected large parts of Flateyri for 3 hours
Rafmagn var tekið af stórum hluta Flateyrar í gær í rúma þrjá tíma eftir að kviknaði í götuskáp Orkubús Vestfjarða fyrir utan grunnskólann. Sjónarvottar lýsa látum og blossum, sem minntu á flugelda, og svart reykský stóð upp af kassanum. brunninn rafmagnskassi á FlateyriAðsend Eldurinn var alfarið bundinn við kassann. Svæðisstjóri hjá Orkubúi Vestfjarða segir tilkynningu hafa borist um klukkan fjögur. Þegar starfsfólk kom á staðinn var rafmagn tekið af stórum hluta Flateyrar. Því var komið aftur á upp úr klukkan átta um kvöldið. Starfsfólk Orkubúsins rannsakar orsök eldsins. Skápurinn var sótsvartur að innan en eldurinn hélst innan hans.Aðsend