- What: Public opinion on Iceland's EU negotiations
- Impact: Icelandic citizens
Meirihluti landsmanna, eða 57%, er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Ríflega 30% eru andvíg og 12% hvorki hlynnt né andvíg. Þetta sýna niðurstöður í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Minni stuðningur við atkvæðagreiðslu mælist meðal karla en kvenna, þó er meirihluti í báðum hópum hlynntur atkvæðagreiðslunni. Þá eru íbúar höfuðborgarsvæðisins frekar hlynntir þjóðaratkvæðagreiðslu en íbúar landsbyggðar. Fólk með háskólamenntun er sömuleiðis frekar hlynnt henni en fólk með minni menntun að baki. Kjósendur Viðreisnar og Samfylkingar eru helst hlynntir þjóðaratkvæðagreiðslu, eða um 90% þeirra. 65% þeirra sem kysu Miðflokkinn og 63% þeirra sem kysu Sjálfstæðisflokkinn eru andvíg. Þjóðin er klofin í tvennt þegar kemur að aðildaviðræðunum sjálfum. Rúmlega 52% telja að þau myndu kjósa með því að halda þeim áfram ef kosið yrði í dag. Tæplega 48% telja að þau myndu kjósa með því að hætta þeim.