Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans eftir bílslys á Vesturlandi um hádegisbilið. Tveir til viðbótar voru fluttir með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Slysið var tilkynnt til neyðarlínu klukkan 10:45. Upplýsingar um líðan fólksins liggja ekki fyrir en allir voru með meðvitund, segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi. Beita þurfti klippum til að ná einum þeirra sem slösuðust úr öðrum bílanna. Hann segir að tveir bílar hafi rekist saman sunnan við Bifröst. Jepplingi hafi verið ekið í veg fyrir jeppa. Tildrög slyssins eru til rannsóknar. Fréttin hefur verið uppfærð.