- What: Traffic accident involving car and bus in South Iceland
- Impact: Two people transported by ambulance, 10 individuals involved, emergency services responded
Tveir verða fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann eftir umferðarslys á Suðurlandi um klukkan hálf þrjú í dag. Smárúta og fólksbíll rákust saman á gatnamótum Biskupstungnabrautar og Laugarvatnsvegar. Lögreglan á Suðurlandi segir alls tíu hafa verið í bílunum. Átta voru fluttir til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. Upplýsingar um líðan fólksins liggja ekki fyrir. Almannavarnir virkjuðu hópslysaáætlun. Lögregla fór á staðinn, ásamt sjúkrabílum og slökkviliði. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út. Fréttin hefur verið uppfærð.