- What: Funding for transport agreement in Iceland
- Impact: Infrastructure and transportation planning in the capital region
Innlent | Morgunblaðið | 24.3.2026 | 13:04 Framkvæmdir sáttmálans fjármagnaðar Ætlunin er að Keldnalandið skili 50 milljörðum króna til samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. mbl.is/Ómar Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Samgönguáætlun 2026-2040 Ófært á meðan göngin bíða útboðs Eyjólfur leggur samgönguráð niður „Hverju er hægt að treysta?“ Horfði ekki bara til einnar skýrslu Beint: Eyjólfur svarar fyrir samgönguáætlunina » Fleiri tengdar fréttir „Samgöngusáttmálinn er sameiginlegt verkefni ríkis og sex sveitarfélaga og er fjármagnaður með framlögum þeirra allra. Um 20% af fjármögnun framkvæmda sáttmálans til 2040 á að koma af samgönguáætlun ríkisins, verkefnin eru því ekki hefðbundin samgönguáætlunarverkefni og því fjallað um þau á annan hátt,“ segir Þorsteinn R. Hermannsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Betri samgangna, í samtali við Morgunblaðið. Hann vísar því á bug að framkvæmdir sáttmálans séu ekki fjármagnaðar, eins og fram kom í samtali við Guðlaug Þór Þórðarson alþingismann í Morgunblaðinu sl. föstudag. Segir Þorsteinn að með samgöngusáttmálanum 2019 og uppfærslu hans 2024 hafi ríkið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu skuldbundið sig til að fjármagna framkvæmdir hans. Lögum samkvæmt sé gert ráð fyrir framlögum hvers árs í fjárhagsáætlunum sveitarfélaga annars vegar og fjármálaáætlun og fjárlögum ríkisins hins vegar. Hvað varðar skort á upplýsingum um áætlaða arðsemi einstakra framkvæmda sáttmálans segir Þorsteinn að sundurliðað mat á einstökum framkvæmdum hefði að mati sérfræðinga skilað óljósum niðurstöðum þar sem þær væru margar tengdar öðrum framkvæmdum, hver hefði áhrif á aðra og áhrif af hverri þeirra yrði að greina fyrir höfuðborgarsvæðið í heild, en ekki staðbundið. Mat á einstökum framkvæmum gæti því gefið skakka mynd af ábata og arðsemi fyrir heildina. Ekki „undir radar“ „Framkvæmdir sáttmálans skila styttri ferðatíma og minni umferðartöfum. Í niðurstöðum arðsemismatsins kemur fram að sparnaður vegfarenda í bílaumferð af framkvæmdum sáttmálans er áætlaður um 793 milljarðar króna og sparnaður vegfarenda í almenningssamgöngum um 624 milljarðar á greiningartímabilinu. Innri vextir af framkvæmdum sáttmálans eru metnir yfir 9% og kostnaðar/ábatahlutfall 3,5,“ segir Þorsteinn og vísar þar til félagshagfræðilegrar greiningar á verkefninu sem gerð var við uppfærslu sáttmálans 2024. Þá hafnar Þorsteinn þeirri gagnrýni að vinna að verkefninu fari fram „undir radar“ og segir að stjórn Betri samgangna, sem skipuð er þremur fulltrúum ríkisins og þremur frá sveitarfélögunum, fundi að jafnaði tvisvar í mánuði og ítarlega sé fylgst með framgangi verkefna. Tvisvar á ári sé eigendum Betri samgangna send skýrsla um framvinduna. Þá haldi Betri samgöngur í upphafi hvers árs opna fundi fyrir kjörna fulltrúa á Alþingi og í sveitarstjórnum þar sem þeir séu upplýstir um stöðu og framgang stakra verkefna. Heyrir ekki undir Alþingi Hann segir að Betri samgöngur, eins og önnur ríkisfyrirtæki, heyri beint undir ráðuneyti en ekki undir Alþingi. Hins vegar fái bæði fjárlaganefnd og umhverfis- og samgöngunefnd skýrslu um framgang verkefna tvisvar á ári. „Eitt af þeim verkefnum sem Betri samgöngum var falið er þróun og sala lands á Keldum til að fjármagna verkefni sáttmálans og eitt af markmiðum ríkisins við færslu landsins til fyrirtækisins er að hámarka virði þess. Markmið um að hámarka virði lands felur ekki í sér að hámarka byggingarmagn. Það felur í sér að hámarka þau gæði sem íbúar og fyrirtæki munu fá með því að flytja inn á landið og ljóst er að það felast ekki mikil gæði í því ef byggt er of þétt eða ef samgöngur ganga ekki upp. Að fá mikið virði og eðlilegt markaðsverð fyrir sölu byggingarréttar á Keldnalandi er að mati Betri samgangna skynsamleg nálgun,“ segir Þorsteinn og hafnar því að það sé slæm nálgun að freista þess að hámarka virði landsins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Samgönguáætlun 2026-2040 Ófært á meðan göngin bíða útboðs Eyjólfur leggur samgönguráð niður „Hverju er hægt að treysta?“ Horfði ekki bara til einnar skýrslu Beint: Eyjólfur svarar fyrir samgönguáætlunina » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hann á aldrei að spila aftur Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar Framkvæmdir sáttmálans fjármagnaðar Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Starfsfólk sé ekki eitt með barni „Ég er harmi slegin“ Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic „Kommissarinn“ íslenskur Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos „Ég er harmi slegin“ Gerir ráð fyrir sömu aðhaldsaðgerð alls staðar Bílar innlyksa vegna snjóflóðs „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hann á aldrei að spila aftur Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar Framkvæmdir sáttmálans fjármagnaðar Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hálftíma argaþras á þingi Hefur gagnrýnt stríðið harðlega: „Er frábær maður“ „Ég er harmi slegin“ Ætla ekki í ófjármagnaðar aðgerðir Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic „Kommissarinn“ íslenskur Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos „Ég er harmi slegin“ Gerir ráð fyrir sömu aðhaldsaðgerð alls staðar Bílar innlyksa vegna snjóflóðs „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri