- What: Public trust in Icelandic institutions studied
- Impact: Gallup survey shows changing trust levels in various public organizations
Innlent | mbl | 6.3.2026 | 14:35 Hverjum treystir þjóðin? Traust almennings til nokkurra opinberra stofnana samfélagsins hefur verið kannað hjá Gallup um árabil. Samsett mynd/mbl.is/Árni Sæberg/Eyþór/Karítas/Ólafur Árdal Setja bókamerki Litlar breytingar eru milli ára á trausti til flestra þeirra stofnana sem eru mældar hjá Gallup. Annað árið í röð er þjóðkirkjan sú stofnun sem hækkar mest en traust til hennar heldur áfram að aukast. Landhelgisgæslan er sú stofnun sem nýtur mests trausts landsmanna, eða 83%. Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup . Fram kemur í tilkynningu að eftir mikla lækkun í fyrra hafi traust til borgarstjórnar aukist marktækt þrátt fyrir að vera sú stofnun sem njóti minnsts trausts. Þeim fækki þó mest milli ára sem beri mikið traust til ríkissáttasemjara. Landhelgisgæslan trónir á toppnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Dregur úr trausti annað árið í röð Sem fyrr segir bera ríflega 83% landsmanna mikið traust til Landhelgisgæslunnar. Annað árið í röð dregur úr trausti til Landhelgisgæslunnar en þeim sem bera mikið traust til hennar fækkar um þrjú prósentustig frá í fyrra. Rúmlega 69% bera mikið traust til lögreglunnar og er það svipað hlutfall og í síðustu mælingu. Tveir af hverjum þremur bera mikið traust til Háskóla Íslands, fjórum prósentustigum færri en í fyrra. Um það bil sex af hverjum tíu bera mikið trausts til heilbrigðiskerfisins. mbl.is/Árni Sæberg Færri bera traust til heilbrigðiskerfisins Naumlega 59% bera mikið traust til heilbrigðiskerfisins en það eru fimm prósentustigum færri en í fyrra. Tæplega 56% bera mikið traust til embættis forseta Íslands og eru það fjórum prósentustigum færri en fyrir ári. Rúmlega 48% bera mikið traust til dómskerfisins en það eru þremur prósentustigum fleiri en í fyrra og hefur traust til dómskerfisins heldur verið að aukast undanfarin ár. Aðeins færri, eða nær 48%, bera mikið traust til þjóðkirkjunnar, fimm prósentustigum fleiri en í fyrra en þetta er annað árið í röð sem traust til þjóðkirkjunnar eykst. Sömuleiðis bera nær 48% mikið traust til umboðsmanns Alþingis og eru það fimm prósentustigum færri en í síðustu mælingu. Graf/Gallup Aðeins fleiri bera mikið traust til Seðlabankans Seðlabankinn nýtur mikils trausts næstum 45% landsmanna og eru það tveimur prósentustigum fleiri en á sama tíma í fyrra. Hátt í 43% bera mikið traust til ríkissáttasemjara og eru það sex prósentustigum færri en fyrir ári. Tæplega 39% bera mikið traust til ríkissaksóknara, sem er svipuð niðurstaða og í fyrra. Um fimmtungur ber mikið traust til bankakerfisins Alþingi nýtur mikils trausts rúmlega 35% landsmanna, álíka mikils og í síðustu mælingu. Nær 21% ber mikið traust til bankakerfisins, jafnmargir og í fyrra. Rétt rúm 13% bera mikið traust til borgarstjórnar Reykjavíkur en það eru fjórum prósentustigum fleiri en á sama tíma í fyrra þegar traust til borgarstjórnar mældist tæp 9%. Spurt var : „Hversu mikið eða lítið traust berð þú til ...?“ Tekið er fram að stofnanir og embætti hafi birst í tilviljunarkenndri röð í netkönnun sem Gallup gerði dagana 12. - 25. febrúar 2026. Heildarúrtaksstærð var 1.980 og þátttökuhlutfall var 39,9%. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Opna Laufeyland í aðdraganda tónleika Í „anddyri evrunnar“ eins og Danir Fær að stýra liðinu í næsta leik Fólk getur fundið fyrir ofnæmis- eða óþolseinkennum Umræðan Lífeyrir fylgi launum Eigum við að veiða tonn eða verðmæti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslendingur í Barein: „Maður vonar að þessu fari að linna“ Boða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst Enski boltinn „stendur undir sér“ Kynnir þingsályktunartillögu um ESB-málið á morgun Mest lesið Í gær Í vikunni Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Árni Árnason Andlát: Eysteinn Helgason „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Tölvupósturinn var ekki mistök „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Íslenska mest töff tungumál í heimi Veðurstofan varar við tíðum eldingum Líklega leggst skólahald af Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Nýjast á mbl.is » Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Opna Laufeyland í aðdraganda tónleika Í „anddyri evrunnar“ eins og Danir Fær að stýra liðinu í næsta leik Fólk getur fundið fyrir ofnæmis- eða óþolseinkennum Umræðan Lífeyrir fylgi launum Eigum við að veiða tonn eða verðmæti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sonur Khamenei „óásættanlegur“ „Ekki hægt að „vippa upp 90 daga neyðarbirgðum“ Beint: Rússar blanda sér í stríðið Flugmóðurskip Írana í ljósum logum Mest lesið Í gær Í vikunni Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Árni Árnason Andlát: Eysteinn Helgason „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Tölvupósturinn var ekki mistök „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Íslenska mest töff tungumál í heimi Veðurstofan varar við tíðum eldingum Líklega leggst skólahald af Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga