Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Björgunarsveitir mælast hátt í trausti

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 22.3.2026 | 10:30 Björgunarsveitir mælast hátt í trausti Björgunarsveitarmaður á vakt við hraunvegginn í eldgosi við Sundhnúkagíga nærri Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Sjálfsagt er erfitt að skora hærra en þessi nýja mæling sýnir,“ segir Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Félagið og starfsemi þessi kom vel út í viðhorfsmælingum sem Gallup gerði nýlega þar sem traust landsmanna til einstakra stofnana og félagasamtaka var kannað. Niðurstöðurnar voru birtar nú í byrjun mánaðarins og þar kom fram að 98% landsmanna segjast treysta björgunarsveitunum. Um 83% aðspurðra sögðust bera traust til Landhelgisgæslunnar og 69% til lögreglunnar. Um 2/3 landsmanna segjast geta stólað á Háskóla Íslands og um 60 af hundraði á heilbrigðiskerfið. Annað árið í röð er þjóðkirkjan sú stofnun sem hækkar mest í mælingum; henni treysta 48% landsmanna. Hlutfall og ár eru sama tala Að njóta trausts 98% landsmanna lætur nærri að vera fullt hús stiga og segist Borghildur Fjóla, fyrir hönd Slysavarnafélagsins Landsbjargar, afar þakklát fyrir niðurstöðuna. „Slysavarnafélag Íslands, einn fyrirrennara okkar, var stofnað fyrir 98 árum svo talan kemur víða fram um þessar mundir. Í fyrra mældist traustið 97% svo við erum í vexti. Um forsögu þessa get ég sagt að fyrir margt löngu voru gerðar kannanir þar sem vörumerkið sem félagið okkar er kom mjög vel út og þá markaðsstaða þess. Könnun á trausti er annars eðlis,“ segir Fjóla þegar hún reifar þessar niðurstöður. Aðilar að Slysavarnafélaginu Landsbjörg eiga alls 93 björgunarsveitir, 37 slysavarnadeildir og 38 unglingadeildir. Í þessu sambandi leggur formaðurinn áherslu á mikilvægi ungliðastarfsins, svo miklu skipti það fyrir nýliðun. „Þótt samkeppni um frítíma fólks sé mikil, sérstaklega í sjálfboðaliðastarfi, gengur okkur vel að fá nýtt fólk til starfa með okkur,“ segir Fjóla. „Að vera í björgunarsveit verður fljótt lífsstíll þeirra sem á annað borð finna sig í starfinu; það er eftir 18 mánaða þjálfun og undirbúning. Þá fyrst fer fólk á útkallslista. Verkefni við leit og björgun heilla marga en síður er þátttaka í til dæmis fjáröflunarverkefnum, jafn mikilvæg og þau nú eru. Aðkoman að starfinu getur annars verið breytileg; á sumum stöðum úti á landi er þátttaka nánast samfélagsskylda.“ Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, segist vera þakklát fyrir hið mikla traust landsmanna. mbl.is/Sigurður Bogi Betri tækni auðveldar störf Fjóla gekk árið 2011 í Björgunarsveitina Ársæl í Reykjavík og hefur verið í hennar röðum síðan, utan nokkur ár sem fjölskyldan bjó í Neskaupstað „Gerpir í Neskaupstað er ekki ýkja fjölmenn sveit en öflug, til dæmis er varðar sjóbjörgun og fær nýtt björgunarskip á næsta ári. Í bæjum við sjávarsíðuna þurfa að vera sterkar björgunarsveitir, enda styður útgerðin vel við starf þeirra. Aðstæður á hverjum stað ráða því eðlilega hvar áherslur og styrkur hverrar sveitar eru og aðstoð við ferðafólk verður æ meiri þáttur í starfinu,“ segir Fjóla og getur þeirra tækninýjunga og búnaðar sem björgunarsveitir nýta sér. Drónar auðveldi leitarstörf svo og bætt fjarskiptatækni. Mikilvægt er að stjórnvöld geri breytingar á skattaumhverfi björgunarsveitanna, svo peningar sem sveitirnar safna nýtist beint til starfs þeirra og framkvæmda. Þetta er kjarninn í þeim samþykktum sem gerðar voru á landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar á síðasta ári. Þar var sérstaklega nefnt að fella ætti niður virðisaukaskatt sem björgunarsveitirnar greiða en í dag eru þær undanþegnar þeim sköttum að nokkru, svo sem af kaupum á ökutækjum og ýmsum búnaði. Þá eru bílar björgunarsveitanna undanþegnir kílómetragjaldinu sem lagt var á um síðustu áramót. Meira þarf þó til, segir formaðurinn, og nefnir þar sérstaklega að bagalegt hafi verið að nú þurfi að greiða virðisauka af starfi iðnaðarmanna á verkstað. Þetta hafi komið til um síðustu áramót og verið mótmælt, án þess að mótleikur stjórnvalda kæmi. Skattur var skellur „Þessi skattlagning var skellur því nú er verið að reisa björgunarmiðstöðvar úti um land og þær kosta sitt. Þarna má nefna Flúðir, Grímsnes og Höfn. Barátta okkar í skattamálum heldur því áfram og skilninginn á sjónarmiðum okkar vantar ekki. Stuðningur almennings er þó alveg skýr og velvilji gagnvart fjáröflunarverkefnum – sem aftur helst í hendur við traustið sem björgunarsveitirnar njóta eins og hin nýja könnun Gallup sýnir,“ segir Borghildur Fjóla að síðustu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sveindís mögnuð í sigri vestanhafs Björgunarsveitir mælast hátt í trausti Þristur á síðustu stundu tryggði níunda sigurinn í röð Göngunum lokað vegna bílveltu Þúsund bumbuleikir að baki Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Chuck Norris látinn Mest lesið Í gær Í vikunni Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Þýskt herskip á siglingu við Íslandsstrendur Grunur um íkveikju í Breiðdal Göngunum lokað vegna bílveltu Einn fékk 2,5 milljónir í vasann Telja að krabbameinsgreiningum muni stórfjölga Stunguárás fyrir utan skemmtistað Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Gestir kvarta undan ólykt Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Þotan fór tvívegis norður í dag Einn fékk 2,5 milljónir í vasann Vill gera glæpamönnum lífið leitt Þýskt herskip á siglingu við Íslandsstrendur Lúxussnekkja á Pollinum Telja að krabbameinsgreiningum muni stórfjölga Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Leiguverð þarf að hækka töluvert Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Nýjast á mbl.is » Sveindís mögnuð í sigri vestanhafs Björgunarsveitir mælast hátt í trausti Þristur á síðustu stundu tryggði níunda sigurinn í röð Göngunum lokað vegna bílveltu Þúsund bumbuleikir að baki Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Öllu millilandaflugi aflýst þar til síðdegis Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Ryksprenging í tómum tanki Mest lesið Í gær Í vikunni Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Þýskt herskip á siglingu við Íslandsstrendur Grunur um íkveikju í Breiðdal Göngunum lokað vegna bílveltu Einn fékk 2,5 milljónir í vasann Telja að krabbameinsgreiningum muni stórfjölga Stunguárás fyrir utan skemmtistað Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Gestir kvarta undan ólykt Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Þotan fór tvívegis norður í dag Einn fékk 2,5 milljónir í vasann Vill gera glæpamönnum lífið leitt Þýskt herskip á siglingu við Íslandsstrendur Lúxussnekkja á Pollinum Telja að krabbameinsgreiningum muni stórfjölga Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Leiguverð þarf að hækka töluvert Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum

Share this article