Í nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið var meðal annars spurt hversu vel eða illa landsmenn treysti Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til að gæta hagsmuna Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Tæpur helmingur sagðist treysta ráðherranum illa að gæta hagsmuna Íslands, eða 44,5%. Þar af sagðist tæplega þriðjungur, eða 32,1%, treysta henni afar illa og 12,4% frekar illa. 39,1% sögðust treysta henni vel, þar af 18,3% mjög vel og 20,8% frekar vel. 16,4% svöruðu hvorki né. Ef eingöngu er horft til þeirra sem tóku afstöðu sagðist ríflega helmingur treysta henni illa, eða 53,2%, en 46,8% sögðust treysta henni vel. Afgerandi munur er á afstöðu svarenda þegar horft er til stjórnmálaskoðana. Kjósendur Miðflokksins bera minnst traust í garð ráðherrans en 94% segjast treysta henni illa til að gæta hagsmuna Íslands og einungis 2% segjast treysta henni vel. Hjá kjósendum Sjálfstæðisflokksins segjast 74% treysta henni illa og 5% vel, og hjá Framsóknarflokknum segjast 68% treysta henni illa og 13% vel. Athygli vekur að um helmingur kjósenda Flokks fólksins, sem situr í ríkisstjórn, segjast treysta ráðherranum illa, eða um 47%, á meðan 41% segjast treysta henni vel. Hjá Samfylkingunni segjast aftur á móti 80% treysta henni vel og einungis 5% illa. Það kemur ekki á óvart að kjósendur Viðreisnar bera langmest traust í garð ráðherrans, eða 91%, en einungis 1% treysta henni illa. Nánar er fjallað um könnun Gallup í Viðskiptablaðinu , sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .