Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gallup: Meiri­hlutinn van­treystir utan­ríkis­ráðherra

Read Full Article →

Í Viðskiptablaðinu á morgun verður könnun Gallup birt, sem unnin var fyrir blaðið, og tengjast spurningarnar hugsanlegum aðlögunarviðræðum við Evrópusambandið. Sjá einnig Vaxandi and­staða við aðild að Evrópu­sam­bandinu Spurt var 1) hversu vel landsmenn treysta Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til að gæta hagsmuna Íslands gagnvart Evrópusambandinu, 2) hversu mikilvægt væri ákvæði í samningi við Evrópusambandið um yfirráð Íslands yfir auðlindum og 3) hversu mikilvægt væri að í slíkum samningi væri að finna bann við að erlendir aðilar geti eignast meirihluta í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Samkvæmt könnuninni segist meirihluti landsmanna sem tóku afstöðu til spurningarinnar treysta Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og formanni Viðreisnar illa að gæta hagsmuna Íslands. Þar af sagðist tæplega þriðjungur treysta henni afar illa. Nánar verður fjallað um könnun Gallup í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Áskrifendur geta lesið blaðið klukkan 19.30 í kvöld. Sjá einnig Meiri­hlutinn and­vígur aðild að Evrópu­sam­bandinu

Share this article