Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Rafmagnslaust í Laugardal vegna bilunar

  • What: Power outage in Laugardal due to a blackout
  • Impact: Local residents and businesses affected
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 38 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Raf­magns­laust í Laug­ar­dal vegna bil­un­ar Andri Yrkill Valsson Rafmagnslaust er í Laugardal og nágrenni í Reykjavík vegna bilunar, samkvæmt upplýsingum frá Veitum. Beðist er velvirðingar á óþægindunum sem þetta kann að valda. Séð yfir Laugardal. Reykjavíkurborg Fyrir 30 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Ríkisútvarpið „Góðir Ís­lend­ing­ar“ – Hildur Vala stýrir nýjum skemmti­þætti á RÚV Nýr skemmtiþáttur hefst á RÚV laugardagskvöldið 28. mars. Sex þættir verða í beinni útsendingu. Leikkonan Hildur Vala Baldursdóttir er aðalstjórnandi og fær með sér landsþekkta skemmtikrafta í hverjum þætti. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tvær stór­felld­ar lík­ams­árás­ir í mið­borg­inni Tveir voru handteknir vegna gruns um stórfelldar líkamsárásir í miðborg Reykjavíkur í nótt. Þeir verða yfirheyrðir síðar í dag. Áhaldi var beitt í annarri árásinni. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ekki náðst í 26 Ís­lend­inga á áhrifa­svæð­um stríð­s­átaka Ekki hefur tekist að ná sambandi við á þriðja tug Íslendinga sem staddir eru á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Mál 47 einstaklinga eru enn í vinnslu af hálfu borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Fyr­ir­hug­uð þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla komin á dag­skrá Al­þing­is Andri Yrkill Valsson Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu er komin á dagskrá þingfundar Alþingis á mánudag. Tillagan var kynnt á blaðamannafundi í gær, þar sem stefnt er að þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Í greinargerð með tillögunni er lögð áhersla á að við blasi gjörbreyttur veruleiki í alþjóðamálum, óstöðugleiki ríki í alþjóðastjórnmálum og alþjóðahyggja eigi undir högg að sækja. Þetta ýti undir auki innlendar áskoranir sem snúi meðal annars að verkefni stjórnvalda að skapa stöðugleika í efnahagsmálum og takast á við viðvarandi verðbólgu og hátt vaxtastig. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland kynntu áformin á blaðamannafundi í gær. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Leik­dag­ur: Hvað gerir Ísland gegn Evr­ópu­meist­ur­un­um? Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta leikur sinn annan leik í undankeppni HM 2027 í dag. Mótherji dagsins er sterkur því Evrópumeistarar Englands bíða íslenska liðsins. Leikurinn hefst klukkan 12:30 og upphitun í Stofunni klukkan 11:50. Allt í beinni á RÚV. Hér í lifandi leikdagsvakt fylgjumst við með öllu því helsta. Við hitum upp, birtum gang leiksins, viðtöl og helstu tilþrif. FRÉTTAVAKT Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Árekst­ur á Hell­is­heiði Andri Yrkill Valsson Vont skyggni er á Hellisheiði. Vegna áreksturs í Skíðaskálabrekkunni, á leið til Reykjavíkur, hefur Vegagerðin tilkynnt um lokun sem vara á í stutta stund á meðan bílarnir eru fjarlægðir. Lélegt skyggni er á Hellisheiði. Mynd úr safni. RÚV / Alma Ómarsdóttir Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Í dag: Evr­ópu­meist­ararn­ir bíða Ís­lands Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Englandi í undankeppni HM 2027 í dag. Leikið verður fyrir fullum velli í Nottingham. Enska landsliðið hefur unnið tvö síðustu Evrópumót. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Þurfum að styrkja stuðn­ings­kerfi ný­sköp­un­ar Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, segir starfsemi fyrirtækisins á Íslandi halda áfram að vaxa þrátt fyrir sölu hugverkaréttinda. Óstöðugt gengi krónunnar hafi ráðið mestu um að 40 milljarða króna skattur verði greiddur í einu lagi. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran „Ekki sögu­lok heldur upphaf leið­ar­inn­ar fram á við“ Írönsk kona, sem flúði heimalandið og hefur búið á Íslandi í fjögur ár, segist vona að Íranar í Íran öðlist frelsi og frið. Fólk óski þess eftir harðstjórn klerkastjórnarinnar síðustu tæplega 40 ár. Þetta séu ekki sögulok. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Deila eyju með ein­hverj­um sem hefur líf og dauða í hendi sér „Hún týnist í sögunni og ég ímynda mér að hún hafi endað á þessari eyju,“ segir Hildur Knútsdóttir um gyðjuna Irpu sem lítið hefur verið fjallað um en verður að söguhetju í nýjustu hrollvekju Hildar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Varað við hvass­viðri og hríð víða um land Gular viðvaranir verða í gildi víðast hvar um landið þar til síðdegis í dag. Veðurstofa Íslands segir ferðaveður vera varasamt á köflum og hvetur ökumenn til að kanna aðstæður vel áður en haldið er af stað. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Verð­bólg­an er 475 af hund­raði — hvergi í heim­in­um meiri Markús Þ. Þórhallsson Mesta verðbólga veraldar geisar í Venesúela, hún nemur 475 prósentum á ársgrundvelli að sögn seðlabanka landsins. Delcy Rodriguez, sitjandi forseti Venesúela, á fundi með Doug Burgum innanríkisráðherra Bandaríkjanna. EPA / MIGUEL GUTIERREZ Ástandið er verra en spádómar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um 269,9 prósenta verðbólgu gerðu ráð fyrir. Verðlag hefur hækkað um 52 af hundraði fyrstu tvo mánuði ársins en seðlabankinn lét eiga sig að spá fyrir um verðlagsþróun ársins. Efnahagsþvinganir Bandaríkjanna gegn Nicolas Maduro, fyrrverandi forseta, hafa haft mikil áhrif á afkomu Venesúelabúa. Bandaríkjaher steypti Maduro af stóli í janúar og flutti hann til New York þar sem hann var ákærður fyrir eiturlyfjaviðskipti. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Kíló­metra­gjald, áhyggj­ur af al­þjóða­mál­um, lýsi og staða ein­hverfra Hvað brennur á þjóðinni? Fólkið sem fréttastofa hitti í Kringlunni hafði skoðanir á þróuninni í alþjóðamálum, kílómetragjaldi, stöðu einhverfra eftir umfjöllun Kveiks og lýsi. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tveir hand­tekn­ir grun­að­ir um stór­fellda lík­ams­árás Markús Þ. Þórhallsson Tveir menn voru handteknir í miðborg Reykjavíkur grunaðir um stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna. Lögreglukonur að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni. RÚV Málið er í rannsókn að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla rannsakar einnig líkamsárás sem gerð var í úthverfi sem sögð er hafa verið minni háttar. Nokkuð eignatjón varð þegar flugeldum var skotið inn um rúðu á hóteli í miðborginni. Fjórir gistu fangageymslur lögreglunnar í morgun. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Flug­um­ferð úr skorð­um á Kefla­vík­ur­flug­velli vegna veðurs Markús Þ. Þórhallsson Illviðrið sem gengur yfir hefur áhrif á flugsamgöngur á Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt upplýsingum aðalvarðstjóra í flugstjórnarmiðstöð er mjög hvasst og gengur á með sterkum hviðum. Þremur morgunferðum Icelandair hefur verið aflýst. RÚV / Ragnar Visage Icelandair hefur aflýst þremur morgunferðum til Evrópu; til Amsterdam, Parísar og Helsinki, og seinkun er á minnst tíu ferðum til viðbótar þar til nær dregur hádegi. Nokkrar brottfarir virðast enn á áætlun samkvæmt vef Isavia en mörgum brottförum og áætluðum lendingum hefur verið frestað um nokkra klukkutíma fram eftir morgni. Allt innanlandsflug er samkvæmt áætlun og einnig brottfarir og komur til Akureyrar erlendis frá. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar gerðu eld­flauga­árás­ir á Kyiv og Kharkiv í nótt Markús Þ. Þórhallsson Íbúar úkraínsku höfuðborgarinnar Kyiv voru í nótt beðnir að halda sig í loftvarnarbyrgjum vegna eldflaugaárása Rússlandshers. Slökkvilið að störfum eftir loftárás á Kyiv 22. febrúar síðastliðinn. AP / Sergei Grits Rússar hafa einnig gert dróna- og eldflaugaárásir á Kharkiv, næststærstu borg landsins, þar sem björgunarsveitir leita fólks undir rústum háhýsis. Yfirvöld þar segja atlögur einnig hafa beinst að Kyiv-hverfinu í borginni sem samanstendur af íbúðabyggð, iðnaðarsvæðum og menntastofnunum. Að minnsta kosti sjö hafa særst í atlögunum, þar á meðal ellefu ára drengur. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ír­ans­for­seti bað ná­granna­rík­in af­sök­un­ar á árásum Vika er liðin í dag síðan Bandaríkin og Ísrael hófu hernað gegn Íran. Hvað hefur gerst síðasta sólarhring? Ísraelsmenn gerðu þunga árás á Mehrabad-alþjóðaflugvöllinn við Teheran í nótt þar sem flugvélar standa í björtu báli. Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir leyniþjónustu Bandaríkjanna og forseta vita nákvæmlega hverjir segi hvað við hvern og því sé hann lítt uggandi yfir orðrómi um að Rússar veiti Írönum leynilegar upplýsingar. Aðstoðarutanríkisráðherra Írans varar Evrópuríki við að blanda sér í árásir á landið. Þau sem slíkt geri verði lögmæt skotmörk Íranshers. Sprengingar hafa kveðið við í Teheran. Sendiherra Írans hjá Sameinuðu þjóðunum segir 1.332 almenna borgara hafa verið drepna síðan á laugardaginn var. Þrír friðargæsluliðar frá Gana særðust alvarlega í loftárás Ísraels sunnanvert í Líbanon í gærkvöld. Ísraelsk stjórnvöld vöruðu landsmenn við eldflaugaárásum frá Íran. Ekki hafa borist tíðindi af manntjóni í nótt. Fjöldi fólks er á vergangi í Líbanon. Skólum hefur verið breytt í neyðarskýli. Masoud Pezeshkian Íransforseti bað nágrannaríki Írans afsökunar á að árásum hefði verið beint gegn þeim. Hann sagði að ekki yrði lagt til atlögu gegn þeim nema lagt yrði þaðan upp í árásarferðir gegn Íran. FRÉTTAVAKT Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Nýbirt skjöl sýna ásak­an­ir um kyn­ferð­is­brot af hálfu Don­alds Trump — fá­sinna segir Hvíta húsið Skjöl sem bandaríska dómsmálaráðuneytið birti í vikunni sýna að ónafngreind kona sakaði Donald Trump um að hafa neytt sig til munnmaka. Það hafi verið á 9. áratugnum þegar hún var unglingur. Hvíta húsið segir ásakanirnar alveg tilhæfulausar. 7. mars 2026 kl. 2:30ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Heg­seth kveðst lítt ugg­andi yfir orð­rómi um að Rússar veiti Írönum leyni­leg­ar upp­lýs­ing­ar Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir leyniþjónustu Bandaríkjanna og forseta vita nákvæmlega hverjir segi hvað við hvern og því sé hann lítt uggandi yfir orðrómi um að Rússar veiti Írönum leynilegar upplýsingar. Brugðist verði við óæskilegri hegðun. 7. mars 2026 kl. 1:30ERLENDAR FRÉTTIR

Share this article