Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Rafmagnslaust varð í Laugardal vegna bilunar Andri Yrkill Valsson Rafmagnslaust varð í Laugardal og nágrenni í Reykjavík skömmu fyrir hádegi vegna bilunar, samkvæmt upplýsingum frá Veitum. Beðist er velvirðingar á óþægindunum sem þetta kann að valda. Uppfært klukkan 12.45 Rafmagn er komið á að nýju á Suðurlandsbraut, Nökkvavog og Karfavog, en er unnið að viðgerð. Uppfært klukkan 14 Rafmagn er komið á að nýju hjá öllum notendum. Séð yfir Laugardal. Reykjavíkurborg Fyrir 9 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Jónína áfram oddviti Framsóknar í Múlaþingi Andri Yrkill Valsson Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar, verður áfram oddviti Framsóknarflokksins í Múlaþingi. Listinn var samþykktur á félagsfundi í dag. Eiður Ragnarsson, ferðaþjónustubóndi, er í öðru sæti og í þriðja sæti Þórey Birna Jónsdóttir, sauðfjárbóndi. Þar á eftir koma Björg Eyþórsdóttir og Guðmundur Bj. Hafþórsson. „Við bjóðum fram lið sem sameinar mikla reynslu en einnig nýtt blóð og nýja sýn á málefnin. Þetta er listi fólks sem þekkir sveitarfélagið, lifir og starfar í samfélaginu og vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp sterkt og samheldið Múlaþing,“ er haft eftir Jónínu í tilkynningu. Listann í heild má sjá HÉR. Aðsend Fyrir 26 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál „Við erum ekki að fara í málþóf í þessu máli“ Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki halda uppi málþjófi á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi samningaviðræður við Evrópusambandið, segir þingmaður flokksins. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Dalabyggð Borga fyrir ull sem annars er metin sem verðlaus Eigendur nýrrar ullarvinnslu í Dalabyggð segja markmiðið með vinnslunni tvíþætt. Annars vegar að hækka ullarverð til bænda og hins vegar að stuðla að því að viðhalda litum íslenska sauðfjárkynsins. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Vinstri flokkar leiti sífellt meira til hægri Svandís Svavarsdóttir segir mikla eftirspurn vera eftir skýrum vinstri boðskap því vinstri flokkar hér á landi leiti sífellt meira til hægri. Hún flytur sína síðustu ræðu sem formaður Vinstri grænna í dag og nýr formaður verður kjörinn á morgun. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður ESB aðild hefði „veruleg neikvæð áhrif á hagsmuni íslenskra bænda“ Aðild að Evrópusambandinu hefði líklega verulega neikvæð áhrif á hagsmuni íslenskra bænda, segir formaður Bændasamtakanna. Samtökin séu þó ekki andsnúin því að þjóðin fái að kjósa um hvort halda eigi áfram viðræðum við ESB. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Ríkisútvarpið „Góðir Íslendingar“ – Hildur Vala stýrir nýjum skemmtiþætti á RÚV Nýr skemmtiþáttur hefst á RÚV laugardagskvöldið 28. mars. Sex þættir verða í beinni útsendingu. Leikkonan Hildur Vala Baldursdóttir er aðalstjórnandi og fær með sér landsþekkta skemmtikrafta í hverjum þætti. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tvær stórfelldar líkamsárásir í miðborginni Tveir voru handteknir vegna gruns um stórfelldar líkamsárásir í miðborg Reykjavíkur í nótt. Þeir verða yfirheyrðir síðar í dag. Áhaldi var beitt í annarri árásinni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ekki náðst í 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátaka Ekki hefur tekist að ná sambandi við á þriðja tug Íslendinga sem staddir eru á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Mál 47 einstaklinga eru enn í vinnslu af hálfu borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla komin á dagskrá Alþingis Andri Yrkill Valsson Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu er komin á dagskrá þingfundar Alþingis á mánudag. Tillagan var kynnt á blaðamannafundi í gær, þar sem stefnt er að þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Í greinargerð með tillögunni er lögð áhersla á að við blasi gjörbreyttur veruleiki í alþjóðamálum, óstöðugleiki ríki í alþjóðastjórnmálum og alþjóðahyggja eigi undir högg að sækja. Þetta ýti undir auki innlendar áskoranir sem snúi meðal annars að verkefni stjórnvalda að skapa stöðugleika í efnahagsmálum og takast á við viðvarandi verðbólgu og hátt vaxtastig. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland kynntu áformin á blaðamannafundi í gær. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Leikdagur: Evrópumeistararnir reyndust seigari og unnu með tveimur Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætti ríkjandi Evrópumeisturum Englands í öðrum leik sínum í undankeppni HM 2027 í dag klukkan 12:30. Enska liðið var feiknasterkt og vann loks með tveimur mörkum, 2-0. Ísland tapaði 3-0 fyrir Spánverjum í fyrsta leik sínum í riðlinum sl. þriðjudag. Næsti leikur Íslands verður gegn Úkraínu á Laugardalsvelli 14. apríl. Hér í lifandi leikdagsvakt fylgjumst við með öllu því helsta. Við hitum upp, birtum gang leiksins, viðtöl og helstu tilþrif. FRÉTTAVAKT Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Árekstur á Hellisheiði Andri Yrkill Valsson Vont skyggni er á Hellisheiði. Vegna áreksturs í Skíðaskálabrekkunni, á leið til Reykjavíkur, hefur Vegagerðin tilkynnt um lokun sem vara á í stutta stund á meðan bílarnir eru fjarlægðir. Lélegt skyggni er á Hellisheiði. Mynd úr safni. RÚV / Alma Ómarsdóttir Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Í dag: Evrópumeistararnir bíða Íslands Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Englandi í undankeppni HM 2027 í dag. Leikið verður fyrir fullum velli í Nottingham. Enska landsliðið hefur unnið tvö síðustu Evrópumót. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Þurfum að styrkja stuðningskerfi nýsköpunar Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, segir starfsemi fyrirtækisins á Íslandi halda áfram að vaxa þrátt fyrir sölu hugverkaréttinda. Óstöðugt gengi krónunnar hafi ráðið mestu um að 40 milljarða króna skattur verði greiddur í einu lagi. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran „Ekki sögulok heldur upphaf leiðarinnar fram á við“ Írönsk kona, sem flúði heimalandið og hefur búið á Íslandi í fjögur ár, segist vona að Íranar í Íran öðlist frelsi og frið. Fólk óski þess eftir harðstjórn klerkastjórnarinnar síðustu tæplega 40 ár. Þetta séu ekki sögulok. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Deila eyju með einhverjum sem hefur líf og dauða í hendi sér „Hún týnist í sögunni og ég ímynda mér að hún hafi endað á þessari eyju,“ segir Hildur Knútsdóttir um gyðjuna Irpu sem lítið hefur verið fjallað um en verður að söguhetju í nýjustu hrollvekju Hildar. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Varað við hvassviðri og hríð víða um land Gular viðvaranir verða í gildi víðast hvar um landið þar til síðdegis í dag. Veðurstofa Íslands segir ferðaveður vera varasamt á köflum og hvetur ökumenn til að kanna aðstæður vel áður en haldið er af stað. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Verðbólgan er 475 af hundraði — hvergi í heiminum meiri Markús Þ. Þórhallsson Mesta verðbólga veraldar geisar í Venesúela, hún nemur 475 prósentum á ársgrundvelli að sögn seðlabanka landsins. Delcy Rodriguez, sitjandi forseti Venesúela, á fundi með Doug Burgum innanríkisráðherra Bandaríkjanna. EPA / MIGUEL GUTIERREZ Ástandið er verra en spádómar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um 269,9 prósenta verðbólgu gerðu ráð fyrir. Verðlag hefur hækkað um 52 af hundraði fyrstu tvo mánuði ársins en seðlabankinn lét eiga sig að spá fyrir um verðlagsþróun ársins. Efnahagsþvinganir Bandaríkjanna gegn Nicolas Maduro, fyrrverandi forseta, hafa haft mikil áhrif á afkomu Venesúelabúa. Bandaríkjaher steypti Maduro af stóli í janúar og flutti hann til New York þar sem hann var ákærður fyrir eiturlyfjaviðskipti. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Kílómetragjald, áhyggjur af alþjóðamálum, lýsi og staða einhverfra Hvað brennur á þjóðinni? Fólkið sem fréttastofa hitti í Kringlunni hafði skoðanir á þróuninni í alþjóðamálum, kílómetragjaldi, stöðu einhverfra eftir umfjöllun Kveiks og lýsi. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tveir handteknir grunaðir um stórfellda líkamsárás Markús Þ. Þórhallsson Tveir menn voru handteknir í miðborg Reykjavíkur grunaðir um stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna. Lögreglukonur að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni. RÚV Málið er í rannsókn að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla rannsakar einnig líkamsárás sem gerð var í úthverfi sem sögð er hafa verið minni háttar. Nokkuð eignatjón varð þegar flugeldum var skotið inn um rúðu á hóteli í miðborginni. Fjórir gistu fangageymslur lögreglunnar í morgun. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Flugumferð úr skorðum á Keflavíkurflugvelli vegna veðurs Markús Þ. Þórhallsson Illviðrið sem gengur yfir hefur áhrif á flugsamgöngur á Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt upplýsingum aðalvarðstjóra í flugstjórnarmiðstöð er mjög hvasst og gengur á með sterkum hviðum. Þremur morgunferðum Icelandair hefur verið aflýst. RÚV / Ragnar Visage Icelandair hefur aflýst þremur morgunferðum til Evrópu; til Amsterdam, Parísar og Helsinki, og seinkun er á minnst tíu ferðum til viðbótar þar til nær dregur hádegi. Nokkrar brottfarir virðast enn á áætlun samkvæmt vef Isavia en mörgum brottförum og áætluðum lendingum hefur verið frestað um nokkra klukkutíma fram eftir morgni. Allt innanlandsflug er samkvæmt áætlun og einnig brottfarir og komur til Akureyrar erlendis frá. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar gerðu eldflaugaárásir á Kyiv og Kharkiv í nótt Markús Þ. Þórhallsson Íbúar úkraínsku höfuðborgarinnar Kyiv voru í nótt beðnir að halda sig í loftvarnarbyrgjum vegna eldflaugaárása Rússlandshers. Slökkvilið að störfum eftir loftárás á Kyiv 22. febrúar síðastliðinn. AP / Sergei Grits Rússar hafa einnig gert dróna- og eldflaugaárásir á Kharkiv, næststærstu borg landsins, þar sem björgunarsveitir leita fólks undir rústum háhýsis. Yfirvöld þar segja atlögur einnig hafa beinst að Kyiv-hverfinu í borginni sem samanstend