- What: A power outage has occurred in Siglufjörður.
- Impact: Residents of Siglufjörður are without electricity, and Rarik is investigating the cause.
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Fjallabyggð Rafmagnslaust á Siglufirði Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Rafmagn fór af á Siglufirði skömmu fyrir klukkan þrjú. Bilanaleit stendur yfir, segir í tilkynningu frá Rarik. Rarik óskar eftir upplýsingum sem gætu hjálpað við bilanaleit og er fólk beðið að hafa samband í síma 528 9000. Rarik Fyrir 15 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Setja um milljarð króna í vopnakaup fyrir Úkraínu Íslensk stjórnvöld ætla að verja átta milljónum bandaríkjadala, um milljarði króna, í vopnakaup fyrir Úkraínu í gegnum sérstakt verkefni á vegum NATO. Fyrir 40 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Undiraldan er fjölbreytt og frískandi Það var komið víða við í Undiröldunni þessa vikuna og ný íslensk lög sett á fóninn frá Kristmundi Axel og Bubba Morthens, Inspector Spacetime og fleirum. Fyrir 44 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Giséle Pelicot í viðtali: „Þetta er ekki ég“ „Þetta er ekki ég,“ sagði Giséle Pelicot þegar hún sá fyrst myndir sem eiginmaður hennar hafði tekið af henni þegar hún var meðvitundarlaus. Hann var dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að nauðga henni og fengið tugi manna til að gera hið sama. Fyrir 54 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tilkynna endalok stóraðgerða ICE í Minnesota Tom Homan kveðst hafa fengið samþykki Trumps fyrir því að ljúka stóraðgerðum innflytjendastofnunarinnar ICE í Minnesota. Íbúar ríkisins hafa mótmælt aðgerðum ICE harkalega og tveir bandarískir ríkisborgarar verið drepnir í aðgerðum ICE í ríkinu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Ríkisstofnanir hafa afskrifað um 2,3 milljarða af skuldum Háskólans á Bifröst Deilurnar í Háskólanum á Bifröst halda áfram þrátt fyrir starfslok rektors. Þrír kennarar við skólann sem voru kærðir til siðanefndar hóta að stefna skólanum. Bifröst hefur staðið í ströngu á liðnum árum vegna erfiðrar skuldastöðu. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Kristrún dæmd úr leik — „Svo eyðileggur maður allt því maður nær ekki að taka rétta beygju“ Kristrún Guðnadóttir var dæmd úr leik í 10 kílómetra skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum fyrir að sleppa brekku. Þetta var seinni grein Kristrúnar á leikunum og hún hefur nú lokið keppni. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Vill að atvinnuveganefnd ræði veiðiráðgjöf Brynjólfur Þór Guðmundsson Fulltrúi Flokks fólksins í atvinnuveganefnd Alþingis vill að nefndin taki ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um loðnuveiði til umræðu. Sigurjón Þórðarson þingmaður segir að ef veiðiheimildir væru miðaðar alfarið við stofnstærðarmælingu loðnu í janúar og minni mælingu i haust sleppt væru veiðiheimildirnar líklegast 100 þúsund krónum meiri en nú er. Þetta segir hann að gæti skilað 23 milljörðum miðað við þær 230 krónur sem fást nú á kílóið í Færeyjum. Sigurjón Þórðarson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Stuðningur við Úkraínu aðalmálið á fundi utanríkisráðherra NATO-ríkjanna Bresk stjórnvöld ætla að verja hálfum milljarði punda í loftvarnir í Úkraínu og fleiri ríki tilkynna um stuðning sinn í dag. Staðan í Úkraínu er aðal umræðuefnið á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins í Brussel í dag. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Gamla bandaríska sendiráðið verði rifið að hluta og breytt í íbúðarhúsnæði Til stendur að rífa viðbyggingar gamla sendiráðs bandaríkjanna í Þingholtunum og byggja þar upp íbúðahúsnæði. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Nemendur mótmæltu hækkun skráningargjalda Háskólaráð fjallar í dag um tillögu um að hækka skrásetningargjald úr 75 þúsund krónum í 100 þúsund krónur. Hópur nemenda mætti og mótmælti hækkuninni. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Golf Frostið setur golfvelli á óþægilegan stað Eftir mildan vetur á höfuðborgarsvæðinu er kuldaboli mættur til að hrella vallarstjóra á golfvöllum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Æskilegt að koma daglegri hreyfingu inn í skólastarf Æskilegt væri að koma daglegri hreyfingu inn í skólastarf, að mati lektors við íþróttadeild Háskólans í Reykjavík. Í framtíðarsýn stjórnvalda er eitt markmið að offita meðal barna verði ekki algengust á íslandi af ríkjum Norðurlandanna. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Handbolti Veit að gagnrýnin kemur frá góðum stað en öllu má ofgera Björgvin Páll markvörður segir gagnrýnina aldrei hafa verið jafn mikla og á nýliðnu Evrópumeistaramóti. Þó hann nýti gagnrýnina til góðs taki aðrir leikmenn misvel í hörð orð. Nú er hann í nýju hlutverki sem getur verið krefjandi. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heimsglugginn Søreide tekur við af Solberg Erna Solberg hættir sem formaður norska íhaldsflokksins Høyre eftir 22 ár og Ine Eriksen Søreide tekur við. Þá var mikilvægi samvinnu rætt í Heimsglugganum í tilefni af eldheitri hvatningu Bertels Haarders til að efla norræna varnarsamvinnu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál SA lagði VR í félagsdómi Samtök atvinnulífsins höfðu betur gegn VR í deilu félaganna um kauptaxtaauka. VR var ósátt við túlkun SA á kjarasamningi og fékk Alþýðusambandið til að höfða mál fyrir félagsdómi fyrir sína hönd. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland „Þið skuluð ekki senda peninga til Úkraínu“ Forsætisráðherra Ungverjalands sagði að Evrópuríki ættu að sleppa því að senda fjámuni til stuðnings Úkraínu ef þau vildu bæta eigin hag. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Grípa þyrfti til aðgerða yrði hópslys Heilbrigðisráðherra tekur undir áhyggjur starfsfólks bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi um aðstæður á deildinni. Starfsfólkið segir að öryggi sjúklinga og starfsfólks sé ógnað á hverjum degi. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Húsleit hjá fyrrverandi forsætisráðherra vegna gruns um stórfellda spillingu Norska efnahagsbrotadeildin Økokrim gerði húsleit hjá Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, í morgun. Húsleitin tengist rannsókn á Jagland vegna gruns um spillingu. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kanada Sex börn á meðal fórnarlamba í Tumbler Ridge Átján ára kona er grunuð um að hafa skotið átta til bana í smábæ í Kanada á þriðjudag og svipt sig sjálfa svo lífi. Sex börn eru á meðal fórnarlambanna. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Veðurstofan fékk dróna til að vakta hraun og kortleggja svæði Kortalagningarmyndavél og hitamyndavél eru meðal tæknibúnaðar í nýjum drónum Veðurstofu Íslands. Þá má nota til að kanna hættuleg svæði og fá yfirsýn yfir aðstæður. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Singapúr Singapúr stofnar þjóðarráð um gervigreind Þjóðarráð um gervigreind verður sett á fót í Singapúr til þess að marka stefnu í notkun þessarar nýju tækni. Forsætisráðherra landsins tilkynnti þetta í morgun. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Smyril Line uggandi vegna hafnaráforma í Þorlákshöfn Stjórnendur Smyril Line furða sig á því að fresta eigi hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn samkvæmt nýrri samgönguáætlun og aðgerðaáætlun til næstu ára. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Nærri 150 millljónir hafa safnast fyrir fjölskyldu Van Der Beek Jafnvirði nærri 150 milljóna króna hefur safnast fyrir fjölskyldu bandaríska leikarans James Van Der Beek sem lést úr krabbameini í gær. Hann var 48 ára og lætur eftir sig eiginkonu og sex börn. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Ingunn Lára býður í partý Partýverkin eru á dagskrá Rásar 2 öll föstudagskvöld frá 22.03 til miðnættis. Ingunn Lára Kristjánsdóttir, fréttamaður, komst í græjurnar á föstudaginn og kom þjóðinni í stuð. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál 100 sjúklingar þar sem eiga að vera 36 180 starfsmenn bráðamóttöku Landspítala krefjast úrbóta og segja aðstæður ógna öryggi. Súrefniskútar eins og hráviðri um ganga deildarinnar. Þá sé augljós bruna- og sprengihætta. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Úkraínumaðurinn dæmdur úr keppni vegna minningarhjálmsins Vladyslav Heraskevych, magasleðakappi frá Úkraínu, hefur verið dæmdur úr leik á Ólympíuleikunum vegna hjálms sem sýnir myndir af úkraínsku íþróttafólki sem fallið hefur í innrásum Rússa í Úkraínu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Spá því að verðbólgan fari minnkandi Brynjólfur Þór Guðmundsson Greiningardeild Íslandsbanka spáir 4,9 prósenta verðbólgu í febrúar. Það er nokkuð minna en verðbólgan í janúar sem var 5,2 prósent. Það var mesta verðbólga í sextán mánuði. Greiningardeildin birtir nokkurra mánaða spá á vef sínum. Hún gerir ráð fyrir að verðbólgan stökkvi í 5,2 prósent í næsta mánuði en verði 4,5 prósent í apríl og maí. Þegar litið er lengra fram í tímann gerir greiningardeildin ráð fyrir því að verðbólga verði að jafnaði 4,3 prósent í ár. Höfuðstöðvar Íslandsbanka. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Sjálfstraustið sneri aftur eftir hárígræðsluna Hvernig kemur hárígræðslan út nokkrum mánuðum eftir aðgerð? Morgunútvarpið kannaði málið. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Vill setja fern markmið í aðgerðaáætlun gegn offitu Heilbrigðisráðherra hefur lagt þingsályktunartillögu um aðgerðir gegn offitu fram til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda. Eitt markmiðanna er að offita meðal barna verði ekki lengur algengust á Íslandi af ríkjum Norðurlanda. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Kvika banki hagnaðist um 6,2 milljarða Kvika banki hagnaðist um rúmlega 6,2 milljarða fyrir skatta á árinu 2025. Stjórn Kviku leggur til að greiddur verði út arður að fjárhæð 1.566 milljónir króna. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Suður-Kórea Fyrrverandi ráðherra dæmdur í sjö ára fangelsi Brynjólfur Þór Guðmundsson Lee Sang-min, fyrrverandi innanríkisráðherra Suður-Kóreu, var í dag dæmdur til sjö ára fangelsisvistar fyrir sinn þátt í því að Yoon Suk Yeol, þáverandi forseti, leysti upp þingið og lýsti yfir herlögum. Forsetinn sendi herinn af stað til að koma í veg fyrir störf þingsins en varð að bakka með valdatöku sína. Lee Sang-min fyrirskipaði að lokað yrði á dreifingu rafmagn