Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ísafjarðarbær Vonast til að rafmagn komist á upp úr hádegi Rebekka Líf Ingadóttir Vonast er til að rafmagn verði komið á Ísafjarðardjúpi upp úr hádegi en en rafmagnslaust hefur verið síðan í gærkvöldi. Unnið er að viðgerðum á Hólmavíkurlínu. Þetta segir Elías Jónatansson, orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða. Rafmagnslaust var á Vestfjörðum í gærkvöldi þegar Mjólkárlína 1 sló út, sem olli straumleysi um alla Vestfirði. Fyrir 5 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Sitjandi beinagrindur af Göllum vekja áleitnar spurningar Beinagrindur frá tímum Galla sem fundist hafa í frönsku borginni Dijon vekja áleitnar spurningar meðal vísindamanna um greftrunarsiði þjóðflokksins. Þær eru af karlmönnum, sitja uppréttar og horfa til vesturs. Var þetta refsing eða umbun? Fyrir 10 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Leikdagur: Koma strákarnir okkar fram hefndum gegn Svíum? Ísland og Svíþjóð mætast í vináttulandsleik í handbolta karla klukkan 17. Uppselt er á leikinn sem fram fer í Kaplakrika. Þetta er seinni leikur liðanna en Svíar unnu þann fyrri á Hlíðarenda á fimmtudagskvöld, 33-35. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenska landsliðið kemur saman frá því á Evrópumótinu í janúar. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV og hefst upphitun klukkan 16:40. Hér verður hægt að horfa á beina útsendingu frá leiknum og fylgjast með uppfærslum á gangi mála í leiknum. FRÉTTAVAKT Fyrir 37 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Endurkoma Stjörnunnar bjargaði liðinu frá falli Haukar og Stjarnan gerðu jafntefli í Olísdeild kvenna í handbolta í dag, 26-26. Á sama tíma tapaði Selfoss fyrir ÍR, 33-20. Úrslitin þýða að Selfoss fellur niður í fyrstu deild en Stjarnan fer í umspil um áframhaldandi sæti í úrvalsdeildinni. Fyrir 43 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Vikulangt gæsluvarðhald vegna alvarlegrar árásar í bílakjallara Maðurinn var handtekinn í gær og úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í gærkvöldi. Árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps og rannsóknin er umfangsmikil. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Mýrdalshreppur Grófu skurði til að verjast ágangi sjávar Landeigendur í Reynisfjöru reyna að verjast náttúruöflunum með því að grafa skurði og reisa mön til að vernda bílastæðið, sem ítrekað hefur flætt yfir undanfarið. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál „Ísland yrði í aftursætinu, rétt eins og Samfylkingin er í aftursætinu hjá Viðreisn“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að Ísland endi í aftursætinu gangi það í ESB. Þá ræddi hún einnig um komandi sveitarstjórnarkosningar og efnahagsmálin í ræðu sinni á flokkráðsfundi Sjálfstæðismanna í dag. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Welbeck afgreiddi Liverpool Hans Steinar Bjarnason Liverpool nýtti ekki tækifærið á að komast upp í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag þegar liðið tapaði 2-1 fyrir Brighton. Danny Welbeck kom Brighton yfir á 13. mínútu en Milos Kerkez jafnaði í 1-1 fyrir Liverpool á 30. mínútu. Welbeck skoraði sigurmark Brighton snemma í seinni hálfleik og hefur hann nú skorað 12 mörk í deildinni í vetur. Danny Welbeck fagnar marki gegn Liverpool í dag. AP / Ian Walton Liverpool er í 5. sæti með 49 stig, tveimur stigum á eftir Aston Villa sem á leik til góða í fjórða sætinu. Brighton er í áttunda sæti með 43 stig. Fjögur efstu sætin tryggja þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu og líkur eru á að fimmta sætið geri það líka. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg Boða 110.000 króna heimgreiðslur í Árborg Bæjarstjórn Árborgar vill bjóða heimgreiðslur til foreldra barna sem ekki hafa fengið dagvistun. Minnihlutinn segir kosningabrag á málinu og segir kostnað vanáætlaðan. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Kristrún boðaði aukið samstarf ríkis og sveitarfélaga Formaður Samfylkingarinnar boðaði aukna samvinnu ríkis og sveitarfélaga í ræðu sinni á flokkstjórnarfundi í dag. Hún fór einnig yfir stöðu efnahagsmála og þær áherslur sem flokkurinn hefur fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ríkisútvarpið Leiðrétting á frétt Þorgils Jónsson Fréttastofa vill koma á framfæri leiðréttingu vegna fréttar sem flutt var í útvarpsfréttum klukkan sjö í morgun. Þar var fyrir mistök sagt frá því að innanlands- og millilandaflugi hafi verið aflýst í dag. Svo var ekki. Flugáætlun hefur verið svo gott sem samkvæmt áætlun bæði fyrir innanlands- og millilandaflug. Beðist er afsökunar á þessum mistökum og óþægindum sem þau kunna að hafa valdið. Frá Keflavíkurflugvelli. Mynd úr safni. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkjaforseti íhugar að draga úr hernaðaraðgerðum gegn Íran Bandaríkjaforseti segist vera að íhuga að draga úr hernaðaraðgerðum gegn Íran. Varnarmálaráðherra Ísraels segir að loftárásir þeirra og Bandaríkjanna gegn Íran eigi eftir að aukast verulega næstu daga. Þrjár vikur eru síðan stríðið hófst. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Elísabet Rut jafnaði Íslandsmet og bætti mótsmet Elísabet Rut Rúnarsdóttir jafnaði í nótt Íslandsmet Guðrúnar Karítasar Hallgrímsdóttur í sleggjukasti með kasti upp á 71,41 metra. Kastið dugði til sigurs á háskólamóti í Bandaríkjunum og var einnig mótsmet. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Hönnun Fimm mánaða adrenalínkikk fylgdi þátttöku í dönsku raunveruleikasjónvarpi Í vikunni lauk sjöundu þáttaröð Danmarks næste klassiker, þar sem fimm hönnuðir kepptu sín á milli. Dögg Guðmundsdóttir var í hópi þátttakenda í ár og sigraði meðal annars keppni um hönnun hægindastóls fyrir Kastrup-flugvöll. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Cristina Alba komst ekki áfram í 60 metrunum Helga Margrét Höskuldsdóttir Christina Alba Marcus Hafliðadóttir keppti á sínu fyrsta stórmóti í fullorðinsflokki í morgun þegar hún hljóp í undanrásum 60 metra hlaupsins á HM í frjálsum innanhúss. Christina Alba hljóp í þriðja riðli og kom í mark á 7,55 sekúndum. Þar var hún í sjöunda sæti af sjö keppendum en í heildarlistanum var hún í 48. sæti af 51 keppanda. Besti tími hennar til þessa er 7,42 sekúndur en Íslandsmetið í greininni er 7,35 sekúndur. Christina Alba ásamt Karolínu Maňasová frá Tékklandi Imago Christina Alba var meðal yngstu keppenda í þessari grein á mótinu en hún er fædd 2007. Júlía Kristín Jóhannesdóttir keppir í undanrásum 60 metra grindahlaupsins á morgun. Bein útsending er frá öllum keppnishlutum mótsins. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturbyggð Kvarta yfir sambandsleysi á þekktu ofanflóðasvæði Fjarskiptasamband í Vesturbyggð hefur versnað til muna eftir að 2G og 3G sendar voru teknir úr sambandi. Skólabíll keyrir daglega yfir Kleifaheiði með ekkert símasamband. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Rekstur BBC World Service tryggður Breska ríkisstjórnin mun auka fjárveitingar til reksturs BBC World Service, alþjóðlegrar útvarpsstöðvar breska ríkisútvarpsins. Tvísýnt var um framtíð útvarpsstöðvarinnar fyrr á árinu. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Búið að opna Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði Þung færð er víða um land eftir hríðarveðrið síðustu daga. Búið er að opna Holtavörðuheiði en hún var lokuð í nótt. Öxnadalsheiði hefur einnig verið opnuð. Með nýrri lægð fer veður versnandi í kvöld suðaustan- og austanlands. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Hundakallinn Lars Løkke og George Clooney seðlabankanna Veist þú hvaða stjórnmálamaður var áður kallaður George Clooney seðlabankanna? Viltu vita meira um næsta leiðtoga Norður-Kóreu? Vissir þú að Ursula von der Leyen er sjö barna móðir? Þetta og svo margt fleira í Heimskviðum í dag. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Íran Krakkaheimskviður: Hvað er að gerast í Íran? Þann 28. febrúar réðust Ísrael og Bandaríkin á Íran. Síðan þá hafa borist stanslausar fréttir af stríðinu. Í Krakkaheimskviðum helgarinnar voru Íran og atburðir síðustu vikna til umfjöllunar. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Leiklist Finna til ábyrgðar að segja þessar sögur og opna dyrnar Félagarnir Davíð Þór, Unnsteinn Manuel og Jónmundur segja bæði persónulegar og sammannlegar sögur í verkinu Gæðablóð sem sýnt er á stóra sviði Þjóðleikhússins. Þeir hafa skipað sér sess innan leiklistargeirans og hafa plássið til að segja þær. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Íþróttir Beint í dag: Seinni leikurinn við Svía og bikarmót í fimleikum Það er nóg um að vera í beinum útsendingum á RÚV í dag. Áhaldafimleikar og handbolti eru á döfinni. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Millilanda- og innandlandsflug að mestu á áætlun í dag Gular veðurviðvaranir munu flestar falla úr gildi kl. 8, utan Suðausturlands, en gul viðvörun verður áfram í gildi þar til klukkan níu. Nokkrar heiðar eru enn lokaðar en innanlands- og millilandaflug er að mestu leyti á áætlun. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar HM í dag: Christina Alba þreytir frumraun og úrslit í mörgum greinum Annar keppnisdagur HM innanhúss í frjálsíþróttum er í dag. Christina Alba Marcus Hafliðadóttir þreyttir frumraun sína fyrir Ísland á stórmóti og heimsmetið í sjöþraut gæti fallið. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkraínumenn skutu yfir 283 drónum á skotmörk í Rússlandi Tveir eru særðir eftir mikla drónaárás Úkraínumanna á skotmörk í Rússlandi í nótt. Drónarnir voru flestir skotnir niður áður en þeir hittu skotmörk sín. 21. mars 2026 kl. 5:22ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar segja Hormússund lokað árásarþjóðum en opið öðrum Utanríkisráðherra Írans hefur boðið Japönum aðstoð við að sigla um Hormússund. Hann segir sundið aðeins lokað þeim þjóðum sem réðust á Íran, en það sé opið öðrum þjóðum. 21. mars 2026 kl. 4:02ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar skjóta flugskeytum á herstöð í Indlandshafi Hvorugt tveggja íranskra flugskeyta hæfði bandarísk-breska herstöð í Indlandshafi í nótt. Herstöðin er á eyjaklasa í um 4.000 kílómetra fjarlægð frá Íran. 21. mars 2026 kl. 2:36ERLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Jöklar í Himalaya-fjöllunum bráðna tvöfalt hraðar nú en árið 2000