Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nóg til hjá Vegagerðinni

Read Full Article →

Það er nóg til og meira frammi, er stundum sagt. Hrafnarnir telja að það séu fyrst og fremst ríkisstarfsmenn sem hafi tamið sér þetta hugarfar, enda geti þeir sem starfa á einkamarkaðnum ekki tileinkað sér það – það er að segja ef þeir vilja halda starfinu. Nú hafa Bergþóra Þorkels­dóttir og hennar fólk í Vegagerðinni boðað til ráðstefnu sem ber yfirskriftina: Horfum fram á veginn – verkefnastjórnun stórframkvæmda og viðhalds. Aðalfyrirlesarinn verður kanadíski metsöluhöfundurinn Dan Gardner, en hann er meðal annars höfundur bókanna Superforecasting og How Big Things Get Done. Hrafnarnir vita sem er að það hleypur á mörgum milljónum króna í kostnaði að fá slík nöfn til fyrirlestrahalds. En á móti kemur að bókatitlarnir benda til þess að starfsfólk Vegagerðarinnar geti lært eitthvað af honum, þar sem framkvæmdir á hennar vegum eru alla jafnan margfalt dýrari en áætlanir gerðu ráð fyrir í upphafi. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum VIðskiptablaðsins. Þessi birtist fyrst í blaðinu sem kom út 4. september 2026.

Share this article