Samstæða Meniga, sem skráð er í Bretlandi, hagnaðist um 8,2 milljónir evra, eða um 1,2 milljarða króna miðað við gengi dagsins í dag, á rekstrarárinu sem lauk 31. mars 2025. Um er að ræða viðsnúning frá fyrra ári þegar 2,6 milljóna evra tap var af rekstrinum. Stórbætta afkomu má að mestu leyti rekja til þess að tekjuskattsinneign nam 5,4 milljónum evra, eða um 775 milljónum króna. Tekjur samstæðunnar námu 10,8 milljónum evra, eða rúmlega 1,5 milljörðum króna, og jukust um 7% milli ára. Rekstrarkostnaður minnkaði aftur á móti um 11% og nam 8 milljónum evra, eða ríflega 1,1 milljarði. Rekstrarhagnaður (EBITDA) nam 2,8 milljónum evra eða um 396 milljónum króna, samanborið við 1,1 milljón evra rekstrarhagnað árið áður. Eigið fé fór úr því að vera neikvætt um 4,6 milljónir evra í að vera jákvætt um 2,7 milljónir evra. Eignir voru bókfærðar á 12,5 milljónir evra, eða um 1,8 milljarða, í lok rekstrarársins, samanborið við 8,8 milljónir evra árið áður. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .