Ljósleiðarinn, dótturfélag Orkuveitunnar, tapaði 340 milljónum króna í fyrra en árið áður nam tapið 731 milljón. Á fyrstu 6 mánuðum ársins 2025 nam tapið 329 milljónum og því nokkur rekstrarbati á seinni hluta árs. Rekstrartekjur hækkuðu um 5,8% milli ára og námu 5.999 milljónum króna. Rekstrarhagnaður (EBITDA) nam 3.524 milljónum, samanborið við 3.013 milljónir árið 2024, sem er aukning um 16,9%. Hrein fjármagnsgjöld námu 1.784 milljónum í fyrra, samanborið við 1.918 milljónir árið áður. Í ársreikningi segir að rekstrarniðurstaða stefni í rétta átt þrátt fyrir viðvarandi verðbólgu með tilheyrandi fjármagnskostnaði. Tekjur hafi aukist, m.a. með fjölgun viðskiptavina, sem og framlegð. Áhersla hafi verið lögð á að forgangsraða fjárfestingum, nýta núverandi innviði betur og skapa rekstrarlegt svigrúm til að mæta skuldbindingum félagsins án þess að ganga á fjárhagslegan stöðugleika þess. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta nálgast fréttina í heild hér .