Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Svaðilför á Borgarfirði eystri

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.3.2026 | 17:15 Svaðilför á Borgarfirði eystri Jón Helgason, vélgæslumaður RARIK á Borgarfirði eystri, ásamt húsdýri sínu eftir svaðilförina aðfaranótt þriðjudags og komið blíðskaparveður. Ljósmynd/Aðsend Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Það var náttúrulega vitlaust veður og fóru tvær staurastæður hérna við Kolshólinn sem er hérna rétt innan við Jökulsá,“ segir Jón Helgason, vélgæslumaður hjá RARIK á Borgarfirði eystri, í samtali við mbl.is um aftakaveður þar í byrjun liðinnar viku. Þegar stæðurnar brotnuðu fór rafmagn af Borgarfirði og var varaaflstöð þá ræst sem ekki dugði þó til. „Hún gat verið með sveitalínurnar en ekki línurnar hingað í bæinn, þá drap hún bara á sér,“ segir Jón frá og segir RARIK-menn frá Egilsstöðum þá hafa verið lagða af stað. Frétt af mbl.is Viðgerðum við Borgarfjarðarlínu lokið „Þeir voru komnir út í fjall og þar var allt ófært. Ég var eitthvað að snúast þarna inn frá og vita hvort ég sæi eitthvað og rambaði þá allt í einu á að viftan snerist ekki,“ segir vélgæslumaðurinn frá og á þar við kæliviftu fyrir vatnskassa sem stendur utanhúss. „Svo fann ég þarna box“ „Ég fór að skoða þetta en það er búið að breyta þessu öllu frá því sem var í gamla daga, ég fann hvergi útsláttaröryggi eða neitt. Svo fann ég þarna box með alls konar ljósum á og fór að fikta í því, svissaði þessum dósum út og setti þetta bara á „auto“. Ég var búinn að komast að því að kapallinn frá mótornum þarna úti lá gegnum vegginn og í þetta stykki,“ lýsir hann aðstæðum. Viftan reyndist svo komin í gang og farin að kæla þegar Jón gekk út fyrir og kannaði málið. „Vélin var þá komin í 90 eða rúmlega 90 gráður sem var nálægt suðu en fór svo niður í 85 smám saman og þá var hægt að koma notendunum á. Þetta hefur verið milli klukkan tvö og þrjú um nóttina,“ segir hann frá. Jón fór gangandi við annan mann að aflstöðinni og segir varla hafa verið stætt í bylnum sem þá var. „Nágranni minn í næsta húsi er með veðurstöð. Hann er reyndar úti á Spáni en hann hringdi hérna og sendi okkur svo mynd af skjánum hjá sér sem sýndi að vindhraðinn fór í rúmlega 50 metra, 52 eða 53 held ég,“ segir Jón frá. „Við þurftum að skríða hér á milli húsa og ef maður lenti á svelli þá var maður bara farinn,“ segir vélgæslumaðurinn og hlær við. Fór til baka eftir vasaljósi „Þegar við vorum komnir inn eftir voru engin ljós og ég gleymdi að hafa með mér vasaljós svo ég þurfti að fara heim aftur til að sækja mér ljós til að komast að því hvað væri að,“ segir hann frá. „En þetta reddaðist og þeir [RARIK-sveitin frá Egilsstöðum] gátu snúið við í Vatnsskarði. Það stóð til að kalla út blásara sem Vegagerðin er með þarna út frá, þeir voru búnir að leggja einhver drög að því að fá hann út ef þyrfti en þegar þetta gekk þá hættu þeir við þetta allt saman og sneru við. Þeir komu svo hérna aftur á sleðum til að kanna línuna og hún er bara í góðu ástandi eins og er. Þetta er bara hérna rétt fyrir innan,“ segir hann. Í kjölfarið hafi svo verið skipt um staura og þverslár þar sem línan féll niður og varaaflstöðin því lokið hlutverki sínu í bili. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Svartfjallaland - Ísland, staðan er 10:7 Viggó fór á kostum Svaðilför á Borgarfirði eystri Orri markahæstur í sigri Sporting Myndir: Hvalreki í Kjálkafirði Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bretar búa flugmóðurskip til brottfarar Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Uppgjöf í viðureigninni við verðbólgu og vexti Flúði Gasa og býr til blóm Mest lesið Í gær Í vikunni Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Bar sjónvarpið saman við brjóst Hafnarfjarðarvegi lokað vegna áreksturs Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Özur Lárusson Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Telja auglýsingu vera löglega Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Svartfjallaland - Ísland, staðan er 10:7 Viggó fór á kostum Svaðilför á Borgarfirði eystri Orri markahæstur í sigri Sporting Myndir: Hvalreki í Kjálkafirði Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sigmundur: „Uppgjöf af hálfu ríkisstjórnarinnar“ Bretar búa flugmóðurskip til brottfarar Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Stærsti vopnaframleiðandinn fjórfaldar framleiðslu Mest lesið Í gær Í vikunni Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Bar sjónvarpið saman við brjóst Hafnarfjarðarvegi lokað vegna áreksturs Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Özur Lárusson Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Telja auglýsingu vera löglega Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar

Share this article