- What: A new name is chosen for a ferry terminal
- Impact: The name 'Vör' was selected in a public competition
Innlent | mbl | 9.3.2026 | 10:15 Farþegamiðstöðin komin með nafn Teikning/Faxaflóahafnir Setja bókamerki Ný fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Viðeyjarsund í Reykjavík hefur hlotið nafnið Vör eftir metþátttöku í nafnasamkeppni. Alls bárust 6.025 tillögur frá 3.384 einstaklingum en hvorki hafa fleiri tillögur né þátttakendur birst í nafnasamkeppni hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Faxaflóahöfnum. Dómnefnd, sem skipuð var Gunnari Tryggvasyni hafnarstjóra, Líf Magneudóttur stjórnarformanni Faxaflóahafna og Vigdísi Hafliðadóttur, listamanni, heimspekingi, sjónvarpskonu og textahöfundi, sem jafnframt var formaður nefndarinnar, valdi nafnið meðal annars með hliðsjón af því að það væri þjált, félli vel að íslenskri málhefð og væri ekki tungubrjótur fyrir þau sem tala önnur mál. Alls bárust 115 tillögur um nafnið Vör og var það þriðja algengasta tillagan. Í samræmi við auglýstar reglur var rökstuðningur látinn ráða ef sama tillaga bærist frá mörgum þátttakendum. Þar sem dómnefnd mat rökstuðning nokkurra innsendinga bera af var hlutkesti látið ráða milli þeirra. Í þeim vendingum var Vala Steinsdóttir hlutskörpust og í rökstuðningi hennar segir: „Vör er staður komu og samveru. Skjól við sjóinn þar sem ferðalangar, borgarbúar og hugmyndir mætast, allt árið um kring. Vör er rótgróið íslenskt orð sem vísar til lendingar, móttöku og skjóls við sjó. Frétt af mbl.is Faxaflóahafnir leita til almennings Á sér djúpar tengingar Nafnið á sér djúpar tengingar við siglingar og komu til landsins og endurspeglar þannig hlutverk farþegamiðstöðvarinnar á skýran og táknrænan hátt. Um leið er Vör stutt, hljómfagurt og auðvelt í framburði fyrir fólk af ólíkum tungumálabakgrunni. Nafnið fellur vel að íslenskri málhefð en er jafnframt alþjóðlega aðgengilegt. Vör nær utan um bæði virkni hússins yfir sumartímann og hlutverk þess sem samkomu- og menningarrýmis yfir vetrarmánuðina.“ Vör tekur á móti fyrstu farþegum skemmtiferðaskipa í vor. Utan háannatíma skemmtiferðaskipa, frá október til mars, verður húsið nýtt fyrir viðburði og veislur og rúmar húsið allt að 2.000 veislugesti en 900 manns í sæti. Haft er eftir Gunnari Tryggvasyni hafnarstjóra að hann sé afskaplega sáttur við að húsinu hafi verið fundið þetta fallega og viðeigandi nafn. „Vör ber með sér skýra tengingu við hafið og hlutverk hússins sem lendingarstaður skipa og ferðalöngum skjól. Þakka fyrir mikinn áhuga Fyrir hönd Faxaflóahafna og allra sem koma að því að reisa þessa nýju fjölnota farþegamiðstöð í Reykjavík vil ég þakka fyrir þennan mikla áhuga og þátttöku í nafnasamkeppninni.“ Haft er eftir Vigdísi Hafliðadóttur, formanni dómnefndar, að gaman hafi verið að hve margar frábærar og frumlegar tillögur bárust. „Dómnefndin ræddi þetta fram og til baka en við erum hæstánægð með niðurstöðuna. Vör er fallegt rótgróið orð úr íslenskri menningu sem ný kynslóð fær nú að kynnast. Orðið þýðir lendingarstaður báta, Vör er líka gyðja visku og varkárni í norrænni goðfræði (og gleymum því ekki að vits er þörf þeim er víða ratar) og svo býður orðið líka upp á skemmtilega orðaleiki og við vonum að fólk hlakki til að mæta í veislu í Vör með bros á vör.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Birgitta Líf komin með nýja vinnu Segja „samningaviðræður“ vera villandi hugtak Farþegamiðstöðin komin með nafn Erró mikils metinn í Frakklandi Instagram: Birgitta og Berglind klæddu sig eins Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hver er Mojtaba Khamenei? Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Flúði Gasa og býr til blóm Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Kröfur til nemenda á undanhaldi Feimni við að leggja fyrir heimanám Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Hitafundur í þinginu í dag Minni væntingar, minni árangur Lokun sundsins hefur mest áhrif á Kínverja Meintur níðingur í varðhaldi til 3.apríl Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Birgitta Líf komin með nýja vinnu Segja „samningaviðræður“ vera villandi hugtak Farþegamiðstöðin komin með nafn Erró mikils metinn í Frakklandi Instagram: Birgitta og Berglind klæddu sig eins Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flúði Gasa og býr til blóm Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Færð getur spillst hratt Kröfur til nemenda á undanhaldi Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Kröfur til nemenda á undanhaldi Feimni við að leggja fyrir heimanám Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Hitafundur í þinginu í dag Minni væntingar, minni árangur Lokun sundsins hefur mest áhrif á Kínverja Meintur níðingur í varðhaldi til 3.apríl Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason