Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Farþegamiðstöð við Viðeyjarsund komin með nafn

Read Full Article →

Ný fjölnota farþegamiðstöð í Reykjavík, sem tekur á móti fyrstu farþegum skemmtiferðaskipa nú í vor, hefur hlotið nafnið Vör. Leitað var til almennings um nafn á nýja húsinu í byrjun árs og alls bárust 6.025 nafnatillögur frá 3.384 einstaklingum. Í tilkynningu frá Faxaflóahöfnum, sem reisa farþegamiðstöðina, segir að nafnakeppnin hafi slegið Íslandsmet í sögu nafnasamkeppna, bæði í fjölda tillagna og þátttakenda. „Dómnefndin hafði úr fjölda góðra tillaga að velja og ég er afskaplega sáttur við að húsinu hafi verið fundið þetta fallega og viðeigandi nafn. Vör ber með sér skýra tengingu við hafið og hlutverk hússins sem lendingarstaður skipa og ferðalöngum skjól,“ segir Gunnar Tryggvason hafnarstjóri. Dómnefnd hafði það meðal annars að leiðarljósi við val á nafninu að það skyldi vera þjált, falla vel að íslenskri málhefð og væri ekki tungubrjótur fyrir þau sem tala önnur mál. Sjá einnig Hvað á ný farþegamiðstöð að heita? Alls bárust 115 tillögur um nafnið Vör og var það þriðja algengasta tillagan. Í samræmi við auglýstar reglur var rökstuðningur látinn ráða ef sama tillaga bærist frá mörgum þátttakendum og þar sem dómnefnd mat rökstuðning nokkurra innsendinga bera af, var hlutkesti látið ráða milli þeirra. „Vör er fallegt rótgróið orð úr íslenskri menningu sem ný kynslóð fær nú að kynnast. Orðið þýðir lendingarstaður báta, Vör er líka gyðja visku og varkárni í norrænni goðfræði og svo býður orðið líka upp á skemmtilega orðaleiki og við vonum að fólk hlakki til að mæta í veislu í Vör með bros á vör,“ segir Vigdís Hafliðadóttir, listamaður, heimspekingur, sjónvarpskona, textahöfundur og formaður dómnefndar.

Share this article