Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vör tekur á móti sínu fyrsta skemmtiferðaskipi

Read Full Article →

Franska skemmtiferðaskipið Le Commandant Charcot kom til Reykjavíkur í dag og eru farþegar skipsins þeir fyrstu til að nýta Vör, nýja farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Viðeyjarsund. Um er að ræða tímamót í íslenskri ferðaþjónustu en Vör er fyrsta farþegamiðstöðin sem rís í Reykjavík í 60 ár, eða frá opnun Bifreiðastöðvar Íslands, BSÍ, árið 1965. Farþegamiðstöðin verður formlega opnuð síðar í mánuðinum en þangað til mun Vör taka á móti nokkrum minni skemmtiferðaskipum. Le Commandant Charcot, sem tekur um 250 farþega, hefur þó áður heimsótt Reykjavík og fleiri áfangastaði í kringum landið. Banovsha Ibragimova, umboðsmaður Gára, Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs Faxaflóahafna, Benoît-Etienne Domenget, forstjóri útgerðarinnar hjá PONANT, Étienne Garcia, skipstjóri og Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnasögumaður Faxaflóahafna. © Aðsend mynd (AÐSEND) Skipið kemur til Reykjavíkur með farþega sem eru að ljúka ferðalagi sínu með skipinu hérlendis. Það mun svo taka á móti nýjum farþegum síðar í dag og heldur ferðalagi sínu áfram til Grænlands.

Share this article