Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fyrsta skemmtiferðaskipið afgreitt í Vör

Read Full Article →

Skemmtiferðaskipið Le Commandant Charcot kom til Reykjavíkur í dag og eru farþegar þess þeir fyrstu til að nýta Vör – nýja farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Viðeyjarsund. Frá þessu segir í tilkynningu frá Faxaflóahöfnum. Um sé að ræða tímamót í íslenskri ferðaþjónustu og móttöku skemmtiferðaskipa. Vör sé fyrsta farþegamiðstöðin hérlendis sem sérhæfi sig í þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa. Húsið sé jafnframt fyrsta farþegamiðstöðin sem rísi í Reykjavík í sextíu ár eða frá opnun Bifreiðastöðvar Íslands, BSÍ, árið 1965. Minni skemmtiferðaskip eru undanfarar opnunar Banovsha Ibragimova umboðsmaður Gára, Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs Faxaflóahafna, Benoît-Etienne Domenget, forstjóri útgerðarinnar PONANT Explorations Group, Étienne Garcia, skipstjóri Le Commandant Charcot og Gísli Jóhann Hallsson yfirhafnsögumaður. Mynd/Faxaflóhafnir. „Þó Vör opni formlega síðar í mánuðinum þá munu nokkur minni skemmtiferðaskip fá þann heiður að vera undanfari opnunar hússins, og er hið glæsilega Le Commandant Charcot vel af því komið að vera fyrsta skipið til að nýta Vör fyrir sína farþega og áhöfn. Skipið hefur lengi verið gestur í íslensku höfuðborginni og fleiri áfangastöðum hringinn í kringum landið. Það er sérhannað leiðangursskip, sérstaklega útbúið til siglinga á norðurslóðum, og tekur um 250 farþega,“ segir í tilkynningunni. Í nýtt ferðalag til Grænlands Áfram segir að Le Commandant Charcot komi til Reykjavíkur með farþega sem séu að ljúka ferðalagi sínu með skipinu hérlendis. Það taki á móti nýju farþegum síðar í dag, þegar skipið haldi í nýtt ferðalag og áfram til Grænlands. „Útgerð skipsins er að nýta Vör til farþegaskipta þar sem farþegar stíga frá borði, þar sem margir dvelja lengur á Íslandi, og nýir farþegar koma í þeirra stað eftir að hafa ferðast hingað til lands um Keflavíkurflugvöll til að fara um borð í skipið,“ segir í tilkynningunni. Styður markmið um fjölgun skiptifarþega „Vör er ætlað að tryggja betri þjónustu við ferðamenn og styðja markmið Faxaflóahafna um fjölgun skiptifarþega; þeirra sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa aukin verðmæti fyrir íslenskt efnahagslíf. Farþegamiðstöðin leysir af hólmi þá tímabundu og takmörkuðu aðstöðu sem fyrir er á hafnarsvæðum Faxaflóahafna,“ segir að endingu í tilkynningunni vegna þessara tímamóta.

Share this article