Vör tekur á móti fyrstu farþegum skemmtiferðaskipa í vor. Húsið nýtist einnig sem veislusalur utan annatíma í komum skemmtiferðaskipa.Aðsent / Faxaflóahafnir Ný miðstöð fyrir farþega skemmtiferðaskipa við Viðeyjarsund hefur hlotið nafnið Vör. Í tilkynningu Faxaflóahafna segir að aldrei hafi fleiri tekið þátt í nafnasamkeppni hér á landi. 3.384 manns tóku þátt og sendu inn rúmlega 6 þúsund tillögur. Dómnefnd hafði það meðal annars að leiðarljósi við val á nafninu að það væri þjált, félli vel að íslenskri málhefð og væri ekki tungubrjótur fyrir þau sem tala önnur mál en íslensku. 115 tillögur um nafnið Vör bárust og það var þriðja algengasta tillagan.