Mojtaba Khamenei er nýr æðstiklerkur Írana. Þetta tilkynnti íranska sérfræðingaráðið rétt í þessu. Hann er næstelsti sonur Ayatollah Ali Khamenei æðstaklerks sem drepinn var í loftárásum Ísraela og Bandaríkjamanna 28. febrúar. Mojtaba Khamenei hefur ekki gegnt opinberu embætti áður. Í langri yfirlýsingu sagði ráðið að „eftir vandlegar og ítarlegar athuganir ... á aukafundi dagsins í dag, er Ayatollah Seyyed Mojtaba Hosseini Khamenei (megi Allah vernda hann) skipaður og kynntur sem þriðji leiðtogi hins heilaga kerfis íslamska lýðveldisins Írans, á grundvelli afgerandi atkvæðagreiðslu hinna virtu fulltrúa sérfræðingaráðsins.“ Spáð hafði verið um að Mojat Khamenei yrði fyrir valinu. Aðrir sem komu til greina í æðstu stöðuna voru Alireza Arafi, einn af þremur í bráðabirgðaráðinu sem stýrir landinu, harðlínumaðurinn Mohsen Araki og Hassan Khomeini, barnabarn stofnanda íslamska lýðveldisins árið 1979. Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði sagt að Bandaríkin þyrftu að veita samþykki áður en arftaki Ali Khamenei yrði skipaður. „Ef hann fær ekki okkar samþykki endist hann ekki lengi,“ sagði Trump í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina ABC. Hann sagðist vilja koma í veg fyrir að Bandaríkin réðust aftur á Íran á næstu árum og að Íranar þróuðu kjarnorkuvopn. Aðspurður sagðist hann reiðubúinn að samþykkja leiðtoga með tengsl við klerkastjórnina í Íran.