Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mojtaba Khamenei nýr leiðtogi Írans

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir 8. mars 2026 kl. 21:20ERLENDAR FRÉTTIR Íran Mojtaba Kham­en­ei nýr leið­togi Írans Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir AP / Vahid Salemi Íranska sérfræðingaráðið tilkynnti rétt í þessu að Mojtaba Khamenei er nýr æðstiklerkur Írana. Hann er næstelsti sonur Ayatollah Ali Khamene, æðstaklerks, sem drepinn var í loftárásum Ísraela og Bandaríkjamanna 28. febrúar. Mojtaba Khamenei hefur ekki gegnt opinberu embætti áður. Fréttin verður uppfærð. Fyrir 14 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Færð gæti spillst hratt í hríð­ar­veðri Grétar Þór Sigurðsson Aðstæður gætu orðið varasamar víða um land í dag og alveg fram á morgun. RÚV / Bjarni Rúnarsson Búast má við allhvössum vindi og snjókomu á fjallvegum og heiðum víða um land í dag. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir á að færi verður oft mjög blint og akstursskilyrði því erfið í slíku hríðarástandi. Færð getur spillst hratt í dag. Þetta á helst við á Hellisheiði, Mosfellsheiði og í Þrengslum á Suðvesturlandi, á Holtavörðuheiði, Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði á Norðvesturlandi, á Austfjörðum og mestöllum Vestfjörðum. Þetta ástand varir fram yfir miðnætti á flestum stöðum og jafnvel undir morgun á Vestfjörðum. Fyrir 25 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Sam­göngu- og hafn­ar­bæt­ur í Þor­láks­höfn ýti undir sam­keppni Félag atvinnurekenda gerir tvær tillögur að breytingum á tillögu að samgönguáætlun. Framkvæmdastjóri félagsins segir þær geta ýtt undir virkari samkeppni í skipaflutningum og að fákeppni hafi ríkt á þeim markaði um áratugaskeið hér á landi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Fámenn sveit­ar­fé­lög gætu þurft að deila virkj­ana- og stór­iðju­tekj­um með öðrum Fámenn sveitarfélög sem hýsa virkjanir eða stóriðju gætu þurft að deila fasteignasköttum með fleiri sveitarfélögum nái nýtt frumvarp fram að ganga. Heildartekjur sveitarfélaga gætu hinsvegar aukist um milljarða. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Evrópa hefur ekki keypt jafn mikið af vopnum síðan í kalda stríð­inu Stríðið í Úkraínu, ógn frá Rússlandi og óvissa um Bandaríkin eru sögð ástæða breytingarinnar. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Belgía Enginn særð­ist í spreng­ingu við bæna­hús í Belgíu Grétar Þór Sigurðsson Hér má sjá framhlið bænahússins óskemmda. Wikimedia Commons / Ralf Houven Bænahús gyðinga í Liege í Belgíu skemmdist í sprengingu í nótt. Lögreglan rannsakar nú tildrög sprengingarinnar. Enginn særðist í sprengingunni sem varð um klukkan 4 í nótt en rúður í bænahúsinu sem og nærliggjandi byggingum splundruðust. Bænahúsið var reist 1899. Í byggingunni má finna safn um sögu samfélags gyðinga í borginni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Snjó­þekja á vegum úti Grétar Þór Sigurðsson Það er víða varasöm færð. RÚV / Ágúst Ólafsson Á Suðvesturlandi er snjóþekja á mörgum vegum, til dæmis í Þrengslum og á Mosfellsheiði. Hálka er á Suðurstrandarvegi og hálkublettir á Reykjanesbraut og Hellisheiði. Á Vesturlandi er hálka eða snjóþekja á öllum helstu leiðum. Þæfingsfærð er á Bröttubrekku og þungfært á Fróðárheiði. Hálka er á öllum helstu fjallvegum norðanlands. Þungfært er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Hálka er á flestum leiðum á Austurlandi, þæfingsfærð er á Hárekstaðaleið en snjóþekja á Fagradal, Fjarðarheiði og á Borgarfjarðarvegi. Snjóþekja eða hálkublettir eru á öllum leiðum á Suðausturlandi. Nánari upplýsingar um færð á vegum má finna á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Úrkoma í flest­um lands­hlut­um síð­deg­is Það verður lengst af þurrt á Norðausturlandi fram á kvöld en rigning eða slydda gerir vart við sig annars staðar á landinu. Hiti verður á bilinu 0 til 6 stig yfir daginn. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lög­regla kölluð til vegna sex um­ferð­ar­óhappa Markús Þ. Þórhallsson Lögreglubílar standa við lögreglustöðina á Hverfisgötu. Mynd úr safni. RÚV / Ragnar Visage Lögreglumenn voru kallaðir til vegna minnst sex umferðarslysa á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Samkvæmt dagbók lögreglunnar slasaðist enginn í óhöppunum en einn sem slysi olli var handtekinn grunaður um ölvun við akstur. För nokkurra ökumanna var stöðvuð og þeir sektaðir fyrir umferðarlagabrot á borð við akstur án þess að hafa til þess réttindi. Lögreglumenn sinntu einnig útköllum vegna innbrots og hnupls úr verslunum og fjarlægðu skráningarnúmer þriggja óskoðaðra bíla. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Fyr­ir­hug­uð þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla á dag­skrá Al­þing­is í dag Markús Þ. Þórhallsson Frá blaðamannafundi þar sem forystukonur ríkisstjórnarinnar kynntu áform um þjóðaratkvæðagreiðsluna. RÚV / Ragnar Visage Fyrri umræða um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna framhalds viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu er eina málið á dagskrá fundar Alþingis í dag. Umræðan hefst að loknum óundirbúnum fyrirspurnum klukkan þrjú. Tillagan var kynnt á blaðamannafundi á föstudag þar sem fram kom að stefnt yrði að atkvæðagreiðslunni laugardaginn 29. ágúst. Búast má við fjörugum umræðum í þinginu þar sem stjórnarandstaðan hefur brugðist nokkuð hart við fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar. Meirihluti landsmanna er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslunni samkvæmt niðurstöðum þjóðarpúls Gallups sem birtist fyrir helgi. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Ólympíumót fatlaðra „Fyrir mig sem lýs­anda er þetta líka stund­um flókið“ Snorri Páll Guðbjörnsson er sérfræðingur RÚV í alpagreinum og lýsir mörgum greinum á Vetrarólympíumóti fatlaðra eins og hann gerði á Ólympíuleikunum. Mismunandi fötlunarflokkar geta ekki aðeins flækst fyrir áhorfendum heldur líka sérfræðingunum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Gerry Adams kraf­inn um eins punds tákn­ræn­ar skaða­bæt­ur fyrir voða­verk IRA Málaferli hefjast í Lundúnum í dag í einkamáli gegn Gerry Adams, sem um áratugaskeið var formaður norðurírska stjórnmálaflokksins Sinn Féin. Hann er sakaður um að bera ábyrgð á voðaverkum írska lýðveldishersins IRA. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Árásir ganga á víxl og ol­íu­verð rýkur upp Ekkert lát er á stríðsátökum í Mið-Austurlöndum. Mojtaba Khamenei er nýr æðstiklerkur Írana. Hann er næstelsti sonur Ayatollah Ali Khamenei, æðstaklerksins sem drepinn var í loftárásum Ísraela og Bandaríkjamanna. Íranir skutu eldflaugum í átt að Ísrael í nótt, þeim fyrstu eftir að Mojtaba Khamenei var útnefndur æðstiklerkur. Mannréttindavaktin sakar Ísraelsher um að hafa notað fosfórsprengjur við árásir á íbúðabyggð í Líbanon snemma í mars. Sjö bandarískir hermenn hafa týnt lífi síðan Bandaríkin og Ísrael gerðu innrás í Íran þann 28. febrúar. Verðið á hráolíu er komið yfir hundrað bandaríkjadali á tunnuna. Það hefur ekki gerst í fjögur ár en kveikjan er ótti um að stríðsátökin í Mið-Austurlöndum dragist á langinn. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur í öryggisskyni skipað því starfsfólki sem ekki sinnir brýnustu starfskyldum og fjölskyldum þess að yfirgefa sendiráð landsins í Sádi Arabíu. FRÉTTAVAKT Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Sviss Til­laga um vold­ug­an lofts­lags­sjóð felld með yf­ir­burð­um Ekkert verður af stofnun stórs loftslagssjóðs í Sviss sem hefði kostað skattgreiðendur milljarða franka ár hvert. Ríkisstjórnin hafði hvatt kjósendur til að fella tillögu um sjóðinn í atkvæðagreiðslu, sem þeir gerðu. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Öllum nema þeim sem brýn­ustu skyld­um gegna gert að yf­ir­gefa sendi­ráð Banda­ríkj­anna í Ríad Starfsfólki bandaríska sendiráðsins í Ríad hefur verið gert að koma sér þaðan í öryggisskyni. Þeir sem hafa mikilvægustum skyldum að gegna verða þó áfram að störfum. Íranar halda uppteknum hætti við árásir á nágrannaríkin. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Vopna­inn­flutn­ing­ur til Evrópu marg­fald­ast á þessum áratug Markús Þ. Þórhallsson Vopnainnflutningur til ríkja Evrópu hefur margfaldast á þessum áratug eftir því sem segir í nýrri skýrslu Alþjóðlegu friðarrannsóknarstofunnar í Stokkhólmi, SIPRI. Úkraínskur hermaður. Mjög mikið er flutt af vopnum til Úkraínu vegna innrásarstríðsins. EPA / TOMMASO FUMAGALLI Á árunum 2021 til 2025 hefur innflutningurinn aukist um 210 af hundraði samanborið við fimm ára tímabil þar á undan. Aukningin er fyrst og fremst rakin til innrásarstríðs Rússa í Úkraínu. Rekja má 9,7 prósent vopnainnflutnings veraldar til Úkraínu en önnur ríki Evrópu hafa einnig aukið vopnakaup verulega. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Nýjum æðsta­klerki óskað dauða í mót­mæla­söng Íranir skutu eldflaugum að Ísrael í nótt, skömmu eftir að nýr æðstiklerkur var útnefndur. Heyra má harðan mótmælasöng gegn honum á stuttu myndskeiði sem birt var á samfélagsmiðlum. Frakklandsforseti hefur beðið Íransforseta að hætta árásum. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Skotland Tugum lest­ar­ferða frest­að vegna elds­voða nærri lest­ar­stöð í Glas­g­ow Markús Þ. Þórhallsson Tugum lestarferða frá fjölförnustu lestarstöð Skotlands hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna mikils eldsvoða í fjögurra hæða byggingu nærri aðallestarstöðinni í Glasgow. Slökkviliðsmenn að störfum í Glasgow. Mynd úr safni. EPA / ROBERT PERRY Engan virðist hafa sakað í eldsvoðanum. Byggingin sem var byggð 1851 stendur við Unionstreet er að hluta til hrunin og lestarfélagið Network Rail segir að stöðin verði ekki opnuð í fyrramálið. Það hvetur farþega til að finna annan ferðamáta og boðar frekari upplýsingar um leið og hægt sé. John Swinney, fyrsti ráðherra Skotlands, kveðst uggandi yfir eldsvoðanum, þakkar slökkviliði sín störf og hvetur almenning til að fylgja ferðaleiðbeiningum og halda sig fjarri. 8. mars 2026 kl. 23:30ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Hrá­ol­íu­verð komið vel yfir 100 dali á tunn­una Verðið á hráolíu fór yfir 100 bandaríkjadali á tunnuna þegar markaðir opnuðu í morgun. Það hefur ekki gerst frá upphafi innrásar Rússa í Úkraínu fyrir fjórum árum. Kveikjan er ótti um að stríðsátökin í Mið-Austurlöndum dragist á langinn. 8. mars 2026 kl. 23:00ERLENDAR FRÉTTIR Noregur Býr í tjaldi ti

Share this article