Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 9 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Íran Mojtaba Khamenei nýr leiðtogi Íran Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir AP / Vahid Salemi Íranska sérfræðingaráðið tilkynnti rétt í þessu að Mojtaba Khamenei sé nýr æðstiklerkur Írana. Hann er næstelsti sonur æðstaklerksins sem drepinn var í loftárás í loftárásum Ísraela og Bandaríkjamanna 28. febrúar. Mojtaba Khamenei hefur ekki gegnt opinberu embætti áður. Fréttin verður uppfærð. Fyrir 21 mínútuERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Sjö bandarískir hermenn fallnir Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Trump tekur á móti föllnum hermönnum. AP / Julia Demaree Nikhinson Sjö bandarískir hermenn hafa týnt lífi síðan Bandaríkin og Ísrael gerðu innrás í Íran þann 28. febrúar. Bandaríkjaher tilkynnti fyrir skömmu að sjöundi hermaðurinn hefði látist í gær af sárum sem hann hlaut í árás Írana í Sádi-Arabíu. Hinir sex bandarísku hermennirnir sem hafa fallið voru allir í Kúveit. Donald Trump Bandaríkjaforseti tók á móti líkum þeirra á Dover-herstöðinni í Delaware í gær. Frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu umfangsmiklar loftárásir sínar á Íran hafa Íranar brugðist við með öldu dróna- og eldflaugaárása á Ísrael og aðrar þjóðir í Mið-Austurlöndum þar sem bandarískir hermenn eru staðsettir. Fyrir 50 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Átta létu lífið í hvirfilbyljum í miðríkjum Bandaríkjanna Hvirfilbyljir gengu yfir miðríki Bandaríkjanna um helgina. Átta létu lífið vegna óveðursins, þar á meðal 12 ára drengur. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Handbolti „Búin að koma okkur í þá stöðu að þetta er í okkar höndum“ Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðsins í handbolta, er heilt yfir ánægður með frammistöðuna í leikjunum tveimur gegn Svartfjallalandi þrátt fyrir stórt tap í seinni leiknum í kvöld. Hann segir það í eigin höndum Íslands að komast á EM. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Viðbrögð Kúrda í Írak gætu ráðið framvindu stríðsátaka Íranir hafa skotið fjölmörgum eldflaugum og drónum á sjálfstjórnarsvæði Kúrda í Írak. Íbúarnir óttast ekkert meir en að árásirnar leiði til blóðugra innanlandsátaka eina ferðina enn. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögreglan varar við vasaþjófnaði í miðborg Reykjavíkur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vekur athygli á aukinni tíðni vasaþjófnaðar í miðborg Reykjavíkur. Í dag sinnti lögregla útkalli vegna öskra og láta í íbúð í Reykjavík og hafði uppi á meintum bílaþjófi sem faldi sig í fataskáp. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Hlynur bætti eigið Íslandsmet í hálfmaraþoni Hans Steinar Bjarnason Hlynur Andrésson bætti í dag eigið íslandsmet í hálfu maraþoni utanhúss í móti í Gent í Belgíu. Hlynur hljóp hálfmaraþonið á 1:02:30 klst. og bætti fyrra met frá árinu 2020 um 17 sekúndur. Hlynur Andrésson. RÚV / Mummi Lú Hlynur er ríkjandi Íslandsmethafi í sex vegalengdum utanhúss, 3.000, 5.000 og 10.000 metra hlaupum, 10 km götuhlaupi, hálfmaraþoni og 3.000 metra hindrunarhlaupi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Innviðaráðherra áhyggjufullur og fundar með forstjóra Icelandair Um tuttugu prósenta lækkun hlutabréfa í Icelandair, það sem af er ári, er áhyggjuefni að mati innviðaráðherra. Hann segir það þjóðaröryggismál að halda íslensku eignarhaldi á félaginu. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Nauðsynlegt að bregðast við óvissu um framtíð Kristnesspítala Óvissa ríkir um framtíð starfsemi Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit vegna viðhalds- og innviðavanda. Spítalinn er hluti af starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri. Sveitarstjórn segist reiðubúin að leita lausna í samráði við ríkið. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið ESB vill ekki Ungverjaland 2.0 Evrópusambandið veltir nú upp hvernig koma megi í veg fyrir að ný aðildarríki fari á skjön við gildi sambandsins eftir að þau komast inn. Spor Ungverjalands hræða. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Ólympíumót fatlaðra 51 árs varði ólympíugullið í snjóbrettaati 51 árs kona frá Frakklandi vann í dag gullverðlaun í snjóbrettaati á Vetrarólympíumóti fatlaðra. Þetta voru fimmtu ólympíumótsverðlaun Cécile Hernandez frá upphafi en hún hætti hjólreiðaiðkun árið 2002 þegar hún lamaðist af völdum MS-sjúkdómsins. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Vara við „krókódílum alls staðar“ í kjölfar flóða Rúmlega 1.000 manns hafa verið flutt frá heimilum sínum á Norðursvæði Ástralíu í kjölfar mikilla flóða. Yfirvöld brýndu fyrir íbúum að fara alls ekki ofan í vatnið því þar gætu leynst krókódílar. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Telja nauðsynlegt að hefja skimun á heyrn grunnskólabarna á ný Formaður Heyrnarhjálpar og forstjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands segja nauðsynlegt að hefja skimun á heyrn grunnskólabarna á ný. Hægt sé þannig að grípa fyrr inn hjá börnum sem mögulega bíða eftir annarri greiningu. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Jafnrétti Kynjamisrétti stærsta mannréttindaáskorun samtímans Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir kynjamisrétti stærstu mannréttindaáskorun samtímans. Hann tilgreinir átta aðgerðir sem hann telur nauðsynlegar í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna í dag, 8. mars. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kristinn nýr oddviti á Seltjarnarnesi Andri Yrkill Valsson Kristinn Ólafsson ráðgjafi er nýr oddviti Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi. Sigurþóra Bergsdóttir varaþingmaður er í öðru sæti og Helgi Steinar Helgason arkitekt í þriðja. Auður Halla Rögnvaldsdóttir skipar fjórða sætið og Egill Ö. Hermannsson það fimmta. Listinn var kynntur í dag og í tilkynningu segir að markmiðið sé að taka á verkefnum af ábyrgð, styrkja þjónustu við íbúa og byggja upp lifandi samfélag á Nesinu þar sem mannlíf, skólar og þjónusta standi undir væntingum bæjarbúa. Efstu fimm á lista framboðsins. Ljósmynd / Aðsend Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Leikdagur: Stórt tap Íslands í Svartfjallalandi Ísland tapaði illa fyrir Svartfjallalandi, 33-24, í undankeppni EM kvenna í handbolta í kvöld. Staðan var jöfn í hálfleik, 13-13, eftir að Ísland hafði lent mest þremur mörkum undir. Svartfjallaland er stórveldi í handbolta kvenna og því þótti það til stórtíðinda að liðið tapaði fyrir Íslandi í fyrri leiknum sl. miðvikudag á Ásvöllum, 28-27. Ísland er í botnsæti riðilsins en á ennþá góðan möguleika á að komast í lokakeppni EM 2026. Tvö efstu lið hvers riðils tryggja sig á EM auk fjögurra liða með besta árangur í þriðja sæti. Ísland á eftir að mæta Færeyjum ytra og Portúgal heima í apríl. Hér hituðum við upp fyrir leikinn í lifandi leikdagsvakt og fylgdumst með öllu því helsta. Hægt verður að horfa á beina útsendingu í spilaranum hér fyrir neðan. SAMANTEKT Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturland Fjórir á sjúkrahús eftir árekstur á Vesturlandsvegi Tveir bílar rákust saman á Vesturlandsvegi eftir hádegi í dag. Fjórir voru fluttir með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Upplýsingar um líðan þeirra liggja ekki fyrir en lögreglan segir alla hafa verið með meðvitund á vettvangi. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Vesturlandsvegur lokaður vegna umferðarslyss við Laxárbakka Andri Yrkill Valsson Vesturlandsvegi var lokað á öðrum tímanum vegna umferðarslyss við Laxárbakka, Vogatungu í Leirársveit. Samkvæmt fyrstu tilkynningu Vegagerðarinnar var ekki búist við langri lokun en nú er ljóst að vegurinn verður lokaður að minnsta kosti til klukkan 14.30. „ Ekki er ráðlegt að aka vegi 504 og 502 , því þetta eru sveitarvegir sem eru ekki í vetrarþjónustu og einbreiðir á köflum,“ segir í tilkynningu á umferdin.is. Skjáskot / Vegagerðin. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Skoða möguleg viðbrögð vegna grásleppunnar Talsmaður landssambands grásleppuútgerða er afar ósáttur við afnám kvótasetningar á grásleppu. Sambandið sé að greina hvernig best sé að bregðast við. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Stjórnvöld ættu að hafa alvarlegar áhyggjur af hlutabréfamarkaðnum Lágt gengi hlutabréfa Icelandair er áhyggjuefni fyrir stöðuna á íslenskum hlutabréfamarkaði, segir hagfræðingur. Áhættufælnir fjárfestar eigi meirihluta markaðarins. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál „Eina leiðin er upp á við“ Nýr formaður VG segir mikilvægt að flokkurinn fylli tómarúm á vinstri væng íslenskra stjórnmála. Helsta verkefnið fram undan sé að undirbúa framboð til komandi sveitarstjórnarkosninga. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Formúla 1 Russel sigraði í fyrsta kappakstri ársins eftir mistök hjá Ferrari Hans Steinar Bjarnason Fyrsta keppni nýs tímabils í Formúlu-1 kappakstrinum fór fram í Ástralíu í nótt. Breski ökuþórinn George Russell hjá Mercedes sigraði nokkuð örugglega en dýrkeypt mistök kostuðu Ferrari-manninn Charles Leclerc sigurinn. George Russell á verðlaunapallinum í Melbourne í dag. EPA / JOEL CARRETT Þeir Russell voru í harðri baráttu fyrstu tíu hringina en Ferrari-liðið ákvað að stoppa ekki þegar öryggisbíll þurfti að koma inn á braut. Mercedes-liðið nýtti tækifærið og skipti um dekk. Ferrari tók forystuna á meðan en missti hana þegar það ákvað svo loks að skipta um dekk og Mercedes-mennirnir Russel og Kimi Antonelli hirtu efstu tvö sætin. Heimsmeistarinn Lando Norris varð fimmti. 8. mars 2026 kl. 11:27ERLENDAR FRÉTTIR Noregur Ein tilgáta að sprengingin við sendiráðið hafi verið hryðjuverk Enginn er í haldi norsku lögreglunnar eftir sprengingu við bandaríska sendiráðið í Ósló í nótt. Eitt af því sem er til rannsóknar er hvort sprengingin tengist hryðjuverkum en fleiri tilgátur eru inni í myndinni. 8. mars 2026 kl. 11:27INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Bjarki Hjörleifsson kjörinn varaformaður VG Hugrún Hannesdóttir Diego Bjarki Hjörleifsson. Aðsend / Vinstri hreyfingin – grænt framboð Bjarki Hjörleifsson var kjörinn varaformaður VG á landsfundi flokksins á Selfossi í dag. Hann fékk 99% atkvæða. Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörin formaður. Fráfarandi formaður og varaformaður eru Svandís Svavarsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson. Þau gáfu hvor