Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Beint: Fundur SA um vísitölu­tengingu bóta

Read Full Article →

Samtök atvinnulífsins standa fyrir hádegisfundi í dag um áhrif tengingar bóta almannatrygginga við launavísitölu á vinnumarkað og ríkisútgjöld. Fundurinn hefst kl. 11:30. Í pallborðsumræðum taka þátt Bjarni Benediktsson, nýr framkvæmdastjóri SA, Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við HÍ, Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, Steinunn Þórðardóttir, öldrunarlæknir og formaður Læknafélags Íslands, og Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS. Með frumvarpinu myndu greiðslur almannatrygginga fylgja launavísitölu í stað þess að taka mið af almennri launaþróun - þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Sjá einnig Ráðherrar sjá sér ekki fært að mæta Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að áætlað sé að breytingin muni leiða til allt að 4-5 milljarða útgjaldaaukningar á ári. Til samanburðar voru útgjöld ríkissjóðs til almannatrygginga og tengdra greiðslna áætluð um 230 milljarðar króna á árinu 2025. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: Fundarstjóri er Jón Ólafur Halldórsson , formaður SA Erindi: Ríkisfjármál á sjálfstýringu. Anna Hrefna Ingimundardóttir , aðstoðarframkvæmdastjóri SA Erindi: Samspil atvinnu og bóta. Oddur Ingimarsson , geðlæknir Pallborð: Bjarni Benediktsson , framkvæmdastjóri SA, Gylfi Zoëga , prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, Konráð Guðjónsson , hagfræðingur hjá Kontext, Oddur Steinarsson heimilislæknir og varaformaður Læknafélags Íslands, og Vilhjálmur Birgisson , formaður Starfsgreinasambandsins. Lilja Hrund Lúðvíksdóttir , lögfræðingur á málefnasviði SA, stjórnar umræðum.

Share this article