Innlent | mbl | 9.3.2026 | 13:11 Verið er að búa til hærra gólf fyrir hækkun bóta Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tenging greiðslna almannatrygginga við launavísitölu kann að skapa verðbólguþrýsting, skerða hvata til atvinnuþátttöku, festa hækkanir og setja fimmtung ríkisútgjalda á sjálfsstýringu. Þetta kom fram í máli Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, á fundi samtakanna um áhrif tengingar bóta við launavísitölu á vinnumarkað og ríkisútgjöld. „Það er ekki á hverjum degi sem Samtök atvinnulífsins boða til umræðufundar vegna einstakra lagafrumvarpa, hvað þá þegar verið er að breyta einu orði í lagatexta. Hvað þetta mál varðar er hins vegar ekki annað hægt en að vekja fólk til umhugsunar um hvaða afleiðingar þessar breytingar gætu haft,“ sagði Anna í upphafi erindisins. Í stuttu máli felast breytingarnar í því að breytingar á greiðslu almannatrygginga skuli taka mið af þróun launavísitölu í stað launaþróunar. „Launavísitölutengingin þýðir því í raun að verið er að búa til nýtt og mun hærra gólf fyrir grunnhækkun bótanna en verið hefur hingað til.“ https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/03/01/thrystingur_a_verdbolgu_gaeti_aukist/ Bjarni Benediktsson og Gylfi Zoega hlustuðu af einurð. mbl.is/Karítas Sjálfsstýring slæm hugmynd Í erindinu sagði Anna að með breytingunum væri verið að auka neyslugetu stórs hóps fólks umfram það sem hagkerfið gæti staðið undir og þannig skapað verðbólguþrýsting. Sagði hún að ríkisútgjöld á sjálfsstýringu væru aldrei góð hugmynd „og alls ekki þegar erfiðlega gengur að ná saman hallalausum fjárlögum og verðbólgu í markmið.“ „Þegar við hjá Samtökum atvinnulífsins gerum kjarasamninga er það ávallt markmið okkar að semja um launahækkanir sem eru innan þess svigrúms sem hagkerfið býður upp á. Að jafnaði mætti áætla að það svigrúm sé um 3,5-4% árlega að öllu meðtöldu, ef við viljum ekki skapa verðbólguþrýsting,“ segir Anna. Hún segir að launahækkanir án efnahagslegrar innistæðu muni verða endurheimtar í gegnum verðbólgu vegna þess að kaupmáttur geti ekki vaxið umfram verðmætasköpun til lengdar. „Að meðaltali hefur kostnaðarmat þeirra samninga sem við höfum gert verið um 4% og má því segja að svigrúmið hafi að jafnaði verið fullnýtt í kjarasamningum,“ segir Anna. Frétt af mbl.is Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sigur í fyrsta leik Sigurðar Ragnars Verið er að búa til hærra gólf fyrir hækkun bóta Íran beinir spjótum sínum að orkuverum við Persaflóa Granda aftur flugskeyti í tyrkneskri lofthelgi Íslenska landsliðið heldur til Kaíró Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kröfur til nemenda á undanhaldi Hitafundur í þinginu í dag Segja „samningaviðræður“ vera villandi hugtak Minni væntingar, minni árangur Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Kröfur til nemenda á undanhaldi Farþegamiðstöðin komin með nafn Feimni við að leggja fyrir heimanám Missti stjórn á bílnum vegna hálku Færð getur spillst hratt Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Sigur í fyrsta leik Sigurðar Ragnars Verið er að búa til hærra gólf fyrir hækkun bóta Íran beinir spjótum sínum að orkuverum við Persaflóa Granda aftur flugskeyti í tyrkneskri lofthelgi Íslenska landsliðið heldur til Kaíró Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Beint: Olíuverð rýkur upp vegna vegna átakanna Mojtaba Khamenei nýr leiðtogi Íran Minni væntingar, minni árangur Björgunarflug fyrir á fimmta tug Íslendinga Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Kröfur til nemenda á undanhaldi Farþegamiðstöðin komin með nafn Feimni við að leggja fyrir heimanám Missti stjórn á bílnum vegna hálku Færð getur spillst hratt Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason