Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ráðherrar sjá sér ekki fært að mæta

Read Full Article →

Samtök atvinnulífsins (SA) hafa boðað til hádegisfundar á mánudag um áhrif tengingar bóta við launavísitölu á vinnumarkað og ríkisútgjöld. Í pallborðsumræðum taka þátt Bjarni Benediktsson, nýr framkvæmdastjóri SA, Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við HÍ, Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, Steinunn Þórðardóttir, öldrunarlæknir og formaður Læknafélags Íslands, og Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS. Umræddur hópur hefur gagnrýnt frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu. Grein Gylfa og Axels Hall í Vísbendingu í síðasta mánuði, þar sem málinu var líkt við hagstjórnarmistök á borð við Íbúðalánasjóð, vakti til að mynda mikla athygli. Sjá einnig Vara við al­var­legum hag­stjórnar­mistökum Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins var Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra og Ragnari Þór Ingólfssyni, félags- og húsnæðismálaráðherra, boðin þátttaka á fundinum. Þeir sáu sér ekk Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, mun stýra fundinum. Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, verður með erindi um áhrif málsins á ríkisfjármál. Lilja Hrund Lúðvíksdóttir, lögfræðingur á málefnasviði SA, stjórnar umræðum. Fundinum verður streymt á vb.is á mánudaginn. Sjá einnig Læknar vara við tengingu bóta við launavísitölu

Share this article