Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Meira en 6.000 tonn af hrognaloðnu um helgina

Read Full Article →

Samfelld löndun á hrognaloðnu hefur verið í Neskaupstað yfir helgina og nóg að gera í vinnslunni. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar. Börkur NK hafi komið með 1.600 tonn til löndunar, Barði NK með 1.750 tonn og grænlensku skipin Polar Amaroq með 1.600 tonn og Polar Ammassak með 1.400. Vel hafi gengið að kútta loðnuna og hreinsun og frysting hrognanna í fiskiðjuverinu hafi einnig gengið eins og best verði á kosið. Grænlensku skipin á Breiðafirði „Skipin veiddu loðnuna ekki á sama stað. Börkur og Barði fengu sinn afla út af Reykjanesi en grænlensku skipin voru að veiðum á Breiðafirði. Þroski hrognanna í loðnunni sem veiddist út af Reykjanesinu var um 100% en þroski hrognanna í loðnunni sem veiddist á Breiðafirðinum um 40%,“ segir á svn.is þar sem rætt er við skipstjórana á Barða og Polar Amaroq. Þorkell Pétursson, skipstjóri á Barða, segir þá hafa fengið loðnuna 6 til8 mílur út af Sandgerði og að Börkur hafi verið á sömu slóðum. Þurftu að passa sig á að fá ekki of mikið „Við byrjuðum á að taka eitt prufukast á miðvikudagskvöld til að kanna hvernig loðnan væri sem þarna var á ferðinni. Í prufukastinu fengum við um 100 tonn og í ljós kom að þroski hrognanna var 100% og allar hrygnur voru búnar að losa pokann. Við fengum síðan megnið af aflanum í þremur köstum á fimmtudag. Köstin gáfu frá 500 tonnum og upp í 690 tonn. Þarna voru mjög þéttar torfur og menn þurftu að passa sig á að fá ekki of mikið í nótina. Auk þess var svolítil kvika á meðan á veiðum stóð þannig að það þurfti að fara varlega. Á sama tíma og við vorum þarna að veiðum voru skip að veiða til dæmis í Breiðafirðinum enda hafa margar loðnugöngur komið þessa vertíðina og loðnu víða að sjá,” segir Þorkell á vef Síldarvinnslunnar . Of mikið af hrognum í aflanum Þá er haft eftir Geir Zoёga, skipstjóra á Polar Amaroq, að staða loðnunnar sem veiddist á Breiðafirðinum sé allt önnur en þeirrar loðnu sem veiddist við Reykjanesið. „Við fengum aflann, 1.600 tonn, í tveimur köstum norður af Ólafsvík og Polar Ammassak fékk sinn afla á sömu slóðum. Hrognin í loðnunni þarna eru komin mun skemmra í þroska en hrognin í loðnunni sem veiðist við Reykjanesið. Það bendir allt til að þarna sé um vestangöngu að ræða. Það var hins vegar mikið af hrognum í aflanum hjá okkur eða 18%. Það þykir býsna hátt hlutfall,” segir Geir. Þá kemur fram að bræla hafi verið á loðnumiðunum alla helgina og engin veiði. Vænta mego þess að veiðar geti hafist á ný í dag.

Share this article