Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Góð stemning við hrognavinnsluna í Neskaupstað

Read Full Article →

Hreinsun, pökkun og frysting loðnuhrogna hófst í fiskiðjuveri Síldavinnslunnar í Neskaupstað í gærkvöldi. Frá þessu er sagt á vef Síldarvinnslunnar þar sem haft er eftir Geir Sigurpáli Hlöðverssyni rekstararstjóra versins að vinnan hafi gengið vel. Kúttun á loðnunni hófst strax Fram kemur að Börkur NK hafi komið til heimahafnar í Neskaupstað á mánudagsmorgun með 2.000 tonn af loðnu. „Um var að ræða hrognaloðnu og hófst svonefnd kúttun á loðnunni strax. Það er kallað að kútta loðnuna þegar hún er skorin og hrognunum náð úr henni. Kúttunin er framkvæmd með vélbúnaði og fara hrognin í hreinsun og pökkun í fiskiðjuverinu en hratið fer til mjöl- og lýsisvinnslu. Lokið var við að landa úr Berki í gær en enn er verið að kútta loðnu úr farmi hans,“ segir á svn.is . Mikil og góð stemmning Þá segir frá því að um þrjátíu manns starfi á vakt við hrognaframleiðsluna. „Það er alltaf mikil og góð stemmning í starfsmannahópnum á meðan á henni stendur. Japanskir fulltrúar kaupenda hrognanna fylgjast náið með framleiðsluferlinum.“ Nú í hádeginu var Beitir NK væntanlegur til Neskaupstaðar með 2.300 tonn sem sögð eru verða tekin til kúttunar strax og kúttun á afla Barkar ljúki. Barði nýkominn á loðnumiðin á Breiðafirði „Barði NK er nýkominn á loðnumiðin á Breiðafirði og mun hann koma með næsta hrognuloðnufarm að landi. Nauðsynlegt er að stýra veiðum skipanna og hafa gott heildarskipulag á veiðum og vinnslu því um er að ræða viðkvæmt og verðmætt hráefni.“ Rætt er á heimasíðunni við Tómas Kárason, skipstjóra Beitis NK, sem sagði veiðarnar hafa gengið vel. Hlutfall hrygnu yfir 60 prósent „Við fengum aflann í fimm köstum og um er að ræða fallega og góða hrognaloðnu. Hrognafyllingin er 26 til 28 prósent og hlutfall hrygnu í aflanum er yfir 60 prósent. Síðustu fréttir herma að nú sé loðna sem kemur að vestan að blandast þessari hrognaloðnu í Breiðafirðinum. Hrognin í þeirri loðnu eru komin skemur á þroskabrautinni þannig að þetta er áhyggjuefni, en staðreyndin er sú að það er loðna víða,” segir Tómas Kárason á svn.is .

Share this article