200 mílur | Morgunblaðið | 24.2.2026 | 11:30 Verðmætasta loðnuveiðin er að bresta á Karl Rúnar Róbertsson, gæðastjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar, og Katarzyna Jagielska verkstjóri meta gæði hrogna á loðnuvertíðinni 2023. Geir segir að engin hrogn hafi verið unnin í fiskiðjuverinu síðan þá. Ljósmynd/Aðsend Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Síldarvinnslan gerir ráð fyrir að síðustu farmar japansloðnu hafi borist í gær. Næst þegar afli skilar sér í fiskiðjuverið í Neskaupstað verður loðnan að öllum líkindum orðin tilbúin fyrir hrognavinnslu og þá hefst sá hluti vertíðarinnar sem skapar mest verðmæti. Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar, segir auðvelt að sjá þegar hrygnan er tilbúin fyrir hrognavinnsluna. „Hrognin eru að stækka og verða hlutfallslega stærri hluti af fiskinum. Svo er hitt sem gerist, að þegar kemur nær hrygningu þá losnar um hrognin,“ útskýrir Geir. „Ef þú myndir opna þannig hrygnu, þá flæða hrognin út um allt en annars hanga þau saman eins og í einum sekk.“ Þegar loðnan er komin á þetta stig eru hrognin góð til vinnslu. „Maður finnur það í eiginleikum hrognanna hvað þau eru mikið stökkari og betri þegar þau eru orðin vel þroskuð.“ Þegar Geir svarar í símann er nóg að gera í fiskiðjuverinu en þá er enn þá verið að vinna úr 1.850 tonna afla sem landað var úr veiðiskipinu Beiti NK. Skammt á hæla Beitis kom Börkur NK með rúm 1.500 tonn sem biðu þess að komast í vinnslu. Að öllum líkindum eru það síðustu farmarnir sem sendir verða í frystingu fyrir Asíumarkað, einna helst Japan. Ekki unnið hrogn síðan 2023 Í síðasta kasti Beitis suður af Selvogsvita var loðnan komin í 21% hrognafyllingu og er oft miðað við þann þröskuld áður en hrognavinnsla hefst. Einnig er litið til þroskahlutfalls í því samhengi en þá er átt við hversu mikið af hrygnunni er byrjað að losa pokann. Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar. „Menn hafa verið að melda að það sé núna 20-60% þroski og maður vill helst að hann sé kominn upp í 80%,“ útskýrir Geir. „Þá eru 80% af hrygnunum búin að losa pokann.“ Hann segir það ekki vitað upp á hár hvenær fiskiðjuverið muni sjá fyrstu hrognafarmana en ekki sé langt í það. Þegar loksins kemur að því að hrognaloðnu verði landað breytist margt við vinnsluna í fiskiðjuverinu. „Það er stundum talað um að kreista loðnuna en hún er í raun og veru ekki kreist, hún er skorin,“ segir Geir. „Þá fer hún beint inn í tromlur þar sem við náum að flokka hrognin gróflega frá öllu og svo fer þetta í mikið hreinsunarferli.“ Vegna slakra vertíða síðustu tvö ár hafa hrogn ekki verið unnin þar á bæ síðan 2023 en þá var góð hrognavertíð. Mikil spenna er því í fiskiðjuverinu og vinnuaðstaða fyrir hrognavinnslu þegar undirbúin og klár um leið og rétta loðnan berst. „Þetta er enn einn spennandi kaflinn í þessu. Þetta er ofboðslega snörp vertíð og það er allt bara dagaspursmál,“ segir Geir Sigurpáll að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Munu taka mið af vatnatilskipun Ný nefnd um fiskveiðistjórnun fundar í Reykjavík Aðeins bundnir eigin sannfæringu Hafa fryst 10 þúsund tonn af loðnu Höfundur Íslenskra fiska jarðsunginn Radarinn fer aftur í loftið Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Segir orð Bergþórs valda misskilningi Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Stjórnvöld stígi dansinn við ESB Ný nefnd um fiskveiðistjórnun fundar í Reykjavík Aðeins bundnir eigin sannfæringu Höfundur Íslenskra fiska jarðsunginn Hafa fryst 10 þúsund tonn af loðnu Radarinn fer aftur í loftið Alvarlegar athugasemdir við frumvarp Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Segir orð Bergþórs valda misskilningi Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Stjórnvöld stígi dansinn við ESB Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Höfundur Íslenskra fiska jarðsunginn Ásökun um vanhæfi Engin aukning í loðnukvóta Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Segir orð Bergþórs valda misskilningi Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Aðeins bundnir eigin sannfæringu Hafa fryst 10 þúsund tonn af loðnu Fleira áhugavert Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Kristrún: Skiptir máli að við stöndum með Úkraínu Gekk fram á lík sonar síns við útidyrnar Snjórinn verulegur og mjög fáir á ferli Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 23.2.26 653,23 kr/kg Þorskur, slægður 23.2.26 747,14 kr/kg Ýsa, óslægð 23.2.26 349,70 kr/kg Ýsa, slægð 23.2.26 346,43 kr/kg Ufsi, óslægður 23.2.26 265,53 kr/kg Ufsi, slægður 23.2.26 346,34 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Gullkarfi 23.2.26 297,91 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 23.2.26 26,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 24.2.26 Hilmir ST 1 Línutrekt Ýsa 1.422 kg Þorskur 846 kg Karfi 7 kg Samtals 2.275 kg 24.2.26 Öðlingur SU 19 Línutrekt Þorskur 4.959 kg Ýsa 1.618 kg Steinbítur 243 kg Langa 6 kg Keila 5 kg Samtals 6.831 kg 24.2.26 Vörður ÞH 44 Botnvarpa Ýsa 27.039 kg Þorskur 21.842 kg Skarkoli 3.143 kg Ufsi 3.095 kg Karfi 1.510 kg Langa 1.018 kg Steinbítur 604 kg Þykkvalúra 573 kg Skötuselur 187 kg Samtals 59.011 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Munu taka mið af vatnatilskipun Ný nefnd um fiskveiðistjórnun fundar í Reykjavík Aðeins bundnir eigin sannfæringu Hafa fryst 10 þúsund tonn af loðnu Höfundur Íslenskra fiska jarðsunginn Radarinn fer aftur í loftið Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Segir orð Bergþórs valda misskilningi Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Stjórnvöld stígi dansinn við ESB Ný nefnd um fiskveiðistjórnun fundar í Reykjavík Aðeins bundnir eigin sannfæringu Höfundur Íslenskra fiska jarðsunginn Hafa fryst 10 þúsund tonn af loðnu Radarinn fer aftur í loftið Alvarlegar athugasemdir við frumvarp Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Segir orð Bergþórs valda misskilningi Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Stjórnvöld stígi dansinn við ESB Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Höfundur Íslenskra fiska jarðsunginn Ásökun um vanhæfi Engin aukning í loðnukvóta Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Segir orð Bergþórs valda misskilningi Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Aðeins bundnir eigin sannfæringu Hafa fryst 10 þúsund tonn af loðnu Fleira áhugavert Hver er myrkraprinsinn Mandelson? Kristrún: Skiptir máli að við stöndum með Úkraínu Mikil andstaða í umsagnarferli Gekk fram á lík sonar síns við útidyrnar Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 23.2.26 653,23 kr/kg Þorskur, slægður 23.2.26 747,14 kr/kg Ýsa, óslægð 23.2.26 349,70 kr/kg Ýsa, slægð 23.2.26 346,43 kr/kg Ufsi, óslægður 23.2.26 265,53 kr/kg Ufsi, slægður 23.2.26 346,34 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Gullkarfi 23.2.26 297,91 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 23.2.26 26,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 24.2.26 Hilmir ST 1 Línutrekt Ýsa 1.422 kg Þorskur 846 kg Karfi 7 kg Samtals 2.275 kg 24.2.26 Öðlingur SU 19 Línutrekt Þorskur 4.959 kg Ýsa 1.618 kg Steinbítur 243 kg Langa 6 kg Keila 5 kg Samtals 6.831 kg 24.2.26 Vörður ÞH 44 Botnvarpa Ýsa 27.039 kg Þorskur 21.842 kg Skarkoli 3.143 kg Ufsi 3.095 kg Karfi 1.510 kg Langa 1.018 kg Steinbítur 604 kg Þykkvalúra 573 kg Skötuselur 187 kg Samtals 59.011 kg Skoða allar landanir »