Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Birta myndir af grunuðum sprengjuvargi við bandaríska sendiráðið

  • What: Explosion at U.S. embassy in Iceland.
  • Impact: No casualties, but investigation ongoing.
Read Full Article →

Óslóarlögreglan hefur birt myndir af manni sem er grunaður um að hafa komið fyrir sprengju við bandaríska sendiráðið sem sprakk aðfaranótt sunnudags. Minni háttar skemmdir urðu en engan sakaði við sprenginguna. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn málsins. Í fréttatilkynningu lögreglunnar segir að grunaðs árásarmanns sé leitað. Þar segir að ekki hafi verið um handsprengju að ræða. Rannsókn lögreglu bendi til þess að sprengjan hafi verið heimatilbúin. Sérfræðingur segir árásina líklega tengast stríðinu Lögreglunni hefur borist talsvert magn myndefnis eftir sprenginguna. Frode Larsen sem stýrir rannsókninni segir við norska ríkisútvarpið, NRK , að lögreglan sé nokkuð viss um að maðurinn á myndunum sé sá sem kom sprengjunni fyrir. Það hefur enn ekki verið staðfest að sprengingin tengist stríðinu í Miðausturlöndum. Í ljósi aðstæðna er þó eðlilegt að áætla að þetta tengist árásum Bandaríkjanna í Íran og stríðinu sem brotist hefur út, að mati Vidars Skretting, sérfræðings hjá rannsóknarmiðstöð norska hersins, FFI. „Það er sjaldgæft að útsendarar frá Íran ráðist sjálfir í árásir sem þessar í Evrópu. Það sem við höfum aftur á móti séð er að klerkastjórnin hefur ráðið aðra sem eru hugmyndafræðilega á sömu blaðsíðu og stjórnin í slík verk,“ segir Skretting. Árásina á sunnudagsnótt svipi til sambærilegra árása sem gerðar hafa verið gegn sendiráðum Ísraels í Stokkhólmi og í Kaupmannahöfn á síðustu árum. Gæti tengst glæpagenginu Foxtrot „Þessar árásir eru táknrænar og beinast gegn sendiráðsbyggingunum. Engan hefur sakað í þeim en þær hafa sent skýr skilaboð.“ Skretting segir ekki loku fyrir það skotið að árásin tengist glæpagenginu Foxtrot. Lögreglan í Svíþjóð og Danmörku hefur rakið árásirnar þar til gengisins. Hann segir að árásarmennirnir séu því ekki endilega drifnir áfram af stjórnmálaskoðunum eða hugmyndafræði, heldur séu þeir einfaldlega að inna verk af hendi fyrir greiðslu. „Oft eru þetta börn sem fá einhverja litla greiðslu fyrir að koma þessu til leiðar,“ segir Skretting.

Share this article