- What: Investigation into alleged links between detained individuals and Hamas
- Impact: Ongoing police investigation into potential terrorist ties
Innlent | Morgunblaðið | 26.3.2026 | 6:00 Stangast á við heimildarmenn Alvarleg árás í bílakjallara er enn til rannsóknar. mbl.is/Eggert Setja bókamerki Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir það rangt, sem greint var frá í Morgunblaðinu í gær, að hluti þeirra sem handteknir voru eftir alvarlega líkamsárás í bílakjallara á Höfðatorgi í síðustu viku sé grunaður um tengsl við hryðjuverkasamtök. Í frétt blaðsins kom einnig fram að lögregla væri að fara yfir myndefni úr símum hinna handteknu og að samkvæmt heimildum blaðsins hefðu nokkrir þeirra borið merki Hamas-samtakanna á því, sem og vopn, eins og það var orðað við blaðið. Um hádegi í gær gaf lögreglan út yfirlýsingu þar sem sagt er að frétt Morgunblaðsins sé að hluta til röng. Segir í yfirlýsingunni að engar vísbendingar séu á þessu stigi rannsóknar um tengsl hinna handteknu við Hamas. Þá sé það enn fremur rangt að hinir sömu séu á lista Interpol yfir grunaða hryðjuverkamenn, en blaðið sagði suma mannanna á þeim lista. Enn er þó ekki búið að fara yfir öll stafræn gögn málsins á þessu stigi. Traustir heimildarmenn Þær upplýsingar blaðsins sem byggt var á voru fengnar frá fleiri en einum heimildarmanni innan lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Heimildarmennirnir eru trúverðugir, starfandi lögreglumenn sem vísuðu til myndefnisins og sögðu það benda til umræddra tengsla og að lögregla kannaði þau. Morgunblaðið ráðfærði sig við heimildarmennina um efnistök áður en fréttin var birt og þeir staðfestu hana. Nokkrir aðrir lögreglumenn nálguðust Morgunblaðið í gær eftir lestur fréttarinnar og yfirlýsingu lögreglu og furðuðu sig á yfirlýsingunni, enda væri hún ekki í samræmi við upplýsingar innan lögreglunnar. Morgunblaðið leitaði eftir frekari upplýsingum og viðbrögðum innan lögreglunnar í gær, en þar vísaði hver á annan, en þó fékk blaðið staðfest að verið væri að fara yfir stafræn gögn og að lögregla væri ekki búin að ná að fara yfir allt efnið. Lögreglan kvaðst í yfirlýsingu sinni leggja mikla áherslu á rannsóknina. Niðurstöður hennar munu skýrast eftir því sem líður á og Morgunblaðið mun fylgjast grannt með framvindu málsins. Yfirlýsing lögreglu „Vegna umfjöllunar Morgunblaðsins og mbl.is um rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík í síðustu viku vill embættið taka sérstaklega fram að á þessu stigi bendir ekkert til þess að þeir sem hafa verið handteknir í málinu hafi tengsl við Hamas-samtökin. Þá er það enn fremur rangt að hinir sömu séu á lista alþjóðalögreglunnar yfir grunaða hryðjuverkamenn. Rannsókn málsins er annars í fullum gangi og er í algjörum forgangi hjá embættinu. Hún er mjög viðamikil og tímafrek eftir því, en tveir sitja nú í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar.“ Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Reynir að vera sem ósýnilegust Appelsínugular viðvaranir á stórum hluta landsins Stangast á við heimildarmenn Verðlaunahús selt á 323 milljónir Í fullum rétti að gagnrýna eftir andlát dóttur sinnar Umræðan Seinkum upphafi skóladags Biskupinn og biskupsstólinn í Skálholt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Talsverð röskun á þjónustu Reykjavíkurborgar Áfram í haldi eftir árásina á Höfðatorgi Áhættan vegna stríðsins að breiðast út Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fyrsti veitingastaðurinn í Úlfarsárdal Ríkisstofnanir greiddu 21 milljón í bílastæðasjóð Leysa páskaeggjavanda spítalans Talsverð röskun á þjónustu Reykjavíkurborgar Viðbragð aukið í Grindavík Lögreglan greini grímulaust frá atburðum Hamas-liðar á Höfðatorgi Börnum fylgt í skóla og leikskóla á Suðurnesjum Icelandair aflýsir og frestar millilandaflugi Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með óveðrinu nálgast Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Nýjast á mbl.is » Reynir að vera sem ósýnilegust Appelsínugular viðvaranir á stórum hluta landsins Stangast á við heimildarmenn Verðlaunahús selt á 323 milljónir Í fullum rétti að gagnrýna eftir andlát dóttur sinnar Umræðan Seinkum upphafi skóladags Biskupinn og biskupsstólinn í Skálholt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áhættan vegna stríðsins að breiðast út Stangast á við heimildarmenn „Alls ekki eðlilegt“ Talsverð röskun á þjónustu Reykjavíkurborgar Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fyrsti veitingastaðurinn í Úlfarsárdal Ríkisstofnanir greiddu 21 milljón í bílastæðasjóð Leysa páskaeggjavanda spítalans Talsverð röskun á þjónustu Reykjavíkurborgar Viðbragð aukið í Grindavík Lögreglan greini grímulaust frá atburðum Hamas-liðar á Höfðatorgi Börnum fylgt í skóla og leikskóla á Suðurnesjum Icelandair aflýsir og frestar millilandaflugi Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með óveðrinu nálgast Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar