Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Áframhaldandi gæsluvarðhalds krafist yfir móður og bræðrum sem grunuð eru um sprengjutilræði

This article describes a physical security threat involving a bomb plot against the U.S. embassy in Oslo, where three brothers and their mother are suspected of terrorism. The primary attack vector was an explosive device, with one brother reportedly admitting to planting it. The suspects, Norwegian citizens of Iraqi descent, face potential sentences of up to 21 years if convicted.
Read Full Article →

Áframhaldandi gæsluvarðhalds verður í dag krafist yfir þremur bræðrum og móður þeirra sem grunuð eru um sprengjutilræði við bandaríska sendiráðið í Ósló. Tæknimenn lögreglunnar að störfum við bandaríska sendiráðið.EPA / STIAN LYSBERG SOLUM Óslóarlögreglan birti fréttatilkynningu um meinta aðild móðurinnar í morgun og bræðurnir voru handteknir á miðvikudag. Mæðginin koma fyrir héraðsdómara í dag og hafa verið ákærð fyrir hryðjuverk, samkvæmt frétt norska ríkisútvarpsins. Einn bræðranna er sagður þegar hafa viðurkennt að hafa komið sprengjunni fyrir en hinir tveir neita sök. Verði þeir fundnir sekir gæti það kostað þá allt að 21 árs fangelsi. Óslóarlögregla hefur sagt bræðurna norska ríkisborgara sem eiga ættir að rekja til Íraks.

Share this article