Samkvæmt nýlegri könnun sem Outcome framkvæmdi meðal stjórnenda íslenskra iðnfyrirtækja innan Samtaka iðnaðarins er meirihluti félagsmanna SI andvígur aðild Íslands að Evrópusambandinu. Á vef SI segir að andstaðan hafi farið vaxandi en kannanirnar hafa verið framkvæmdar í febrúar og mars undanfarin tvö ár. Samtök iðnaðarins hafa þó ekki tekið afstöðu til aðildar Íslands að Evrópusambandinu. „Þegar félagsmenn eru spurðir „hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ svara 43% mjög andvíg(ur) og 14% frekar andvíg(ur). Þannig eru 57% félagsmanna andvíg aðild, eða meirihluti. Hins vegar svara 10% mjög hlynnt(ur) og 16% frekar hlynnt(ur). Þannig eru samanlagt um 26% hlynnt,“ segir á síðu SI. Talsverðar breytingar hafa verið í afstöðu félagsmanna til aðildar að Evrópusambandinu á síðustu árum. © Aðsend mynd (AÐSEND) Talsverðar breytingar hafa verið í afstöðu félagsmanna til aðildar að Evrópusambandinu á síðustu árum. Veruleg hækkun hefur verið á hlutfalli þeirra sem eru mjög andvígir aðild. Það hlutfall var 22% árið 2024 en mælist nú 43% líkt og áður sagði. Á sama tíma hefur hlutfall þeirra sem eru fylgjandi lækkað. Þannig var hlutfall þeirra sem voru mjög fylgjandi 17% árið 2024 en mælist nú 10%. Einnig hefur hlutfall þeirra sem eru frekar hlynntir farið úr 20% niður í 15% á tímabilinu.