Andstaða landsmanna gagnvart aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur aukist töluvert á síðustu 12 mánuðum. Þetta kemur fram í nýrri könnun, sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið. Samkvæmt könnuninni eru 47% andvíg því að Ísland gangi í Evrópusambandið, 40% eru hlynnt inngöngu og 13% segjast hvorki hlynnt né andvíg. Spurt var: Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að Ísland gangi í Evrópusambandið (ESB)? Þegar eingöngu er litið á þá sem tóku afstöðu til spurningarinnar er niðurstaðan sú að 54% eru andvígir inngöngu í ESB og 46% hlynnt. Þjóðaratkvæðagreiðslan kynnt Umræða um mögulega inngöngu Íslands í Evrópusambandið hefur aukist mjög á síðustu vikum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lagði þann 6. mars fram þingsályktunartillögu um áframhald aðildarviðræðna við ESB. Þann sama dag boðaði ríkisstjórnin til blaðamannafundar þar sem fram kom að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið 29. ágúst næstkomandi. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar hafði komið fram að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður myndi fara fram „eigi síðar“ en árið 2027. Spurningin sem lögð verður fyrir þjóðina þann 29. ágúst er: Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Svarmöguleikarnir eru annars vegar: Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hins vegar: Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Skúbb Politico Þó málið hafi verið kynnt þann 6. mars hafði vefmiðillinn Politico.eu greint frá því tæpum tveimur vikum áður, eða þann 23. mars, að þjóðaratkvæðagreiðslan gæti fram fram í ágúst. Hafði miðillinn þetta eftir ónafngreindum embættismanni innan ESB. Á daginn kom að miðillinn hafði rétt fyrir sér. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér . Vegna rafmagnsleysis eru tafir á því að netútgáfa blaðsins birtist en stefnt er að því að hún fari í loftið 21.15.