Meirihluti félagsmanna Samtaka iðnaðarins, eða 57 prósent, er andvígur því að Ísland gangi í Evrópusambandið. 26 prósent eru hlynnt aðild, samkvæmt nýrri könnun. Formaður samtakanna segir enga einhlíta skýringu vera á því. Outcome framkvæmdi könnunina meðal stjórnenda íslenskra iðnfyrirtækja í Samtökum iðnaðarins í febrúar og mars. Könnunin var einnig gerð á sama tíma 2024 og á síðasta ári. Andstaðan hefur farið vaxandi síðustu ár. 22 prósent voru mjög andvíg aðild 2024 og 36 prósent á síðasta ári. Á sama tíma lækkaði hlutfall þeirra sem eru fylgjandi aðild. 17 prósent voru mjög fylgjandi aðild 2024 og 11 prósent á síðasta ári. Tíu prósent eru mjög fylgjandi aðild núna. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir enga einhlíta skýringu vera á þessu. „Það sem mann grunar að sé að gerast er bara einfaldlega að umræðan um Evrópusambandið hefur aukist á vegum stjórnmálanna. Við erum með ríkisstjórn sem hefur sett mál á dagskrá, aðild að Evrópusambandinu, og ég les það út úr könnuninni að það veki þessi neikvæðu viðbrögð,“ segir Sigurður. Aukin umræða og vitund um Evrópusambandið hafi áhrif. „Við höllumst að því að það skýri það. Það er í sjálfu sér ekkert sérstakt sem hefur breyst, allavega á þessum skamma tíma, annað í umhverfinu.“ Sigurður segir mun á milli greina innan samtakanna og hagsmuni ólíka milli þeirra. „En engu að síður þá er þetta niðurstaðan. Aðferðafræðin og svarhlutfall er sambærilegt á milli ára þannig að þessi mæling segir sína sögu um viðhorfin í garð aðildar að ESB.“ Samtökin hafa ekki tekið afstöðu til aðildar Íslands að Evrópusambandinu. „Að minnsta kosti ekki á þessum tímapunkti meðan málið er hjá þjóðinni sem lýsir sinni afstöðu í lok ágúst ef allt gengur eftir. Við gætum hagsmuna fyrirtækja í iðnaði á Íslandi og við munum gera það hvort sem Ísland verður hluti af Evrópusambandinu eða ekki.“