Andri Þór Atlason hefur verið ráðinn sölustjóri Íslenska gámafélagsins. Hann kemur til fyrirtækisins með víðtæka alþjóðlega reynslu af viðskiptaþróun og sölu á erlendum mörkuðum. Hann er með meistaragráðu í nýsköpun og viðskiptaþróun frá Copenhagen Business School og hefur starfað mestmegnis erlendis síðastliðinn áratug, en hann kemur til Íslenska gámafélagsins frá Carlsberg Group. Þar starfaði hann síðast sem stjórnandi viðskiptaþróunar (e. Head of Business Development) fyrir starfsemi samsteypunnar í Asíu og Ameríku. Á ferli sínum hjá Carlsberg leiddi hann stór verkefni þvert á landamæri og bar ábyrgð á stefnumótun og rekstri á ört vaxandi mörkuðum. „Íslenska gámafélagið hefur alltaf verið leiðandi í lausnum fyrir hringrásarhagkerfið og það eru spennandi tímar framundan í þróun þjónustunnar. Við erum stöðugt að horfa til þess hvernig við getum aukið virði fyrir okkar viðskiptavini með fjölbreyttari lausnum,“ segir Andri Þór. Samhliða ráðningu Andra urðu frekari skipulagsbreytingar á sölu- og þjónustusviði fyrirtækisins. Auður Pétursdóttir, sem áður gegndi starfi sölustjóra, tekur við nýju starfi sem framkvæmdastjóri þjónustu hjá Íslenska gámafélaginu.