Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Olíuverð haldi áfram að hækka verði Hormús-sund ekki opnað

Read Full Article →

Forstöðumaður hjá Íslandssjóðum óttast að áframhaldandi lokun Hormússunds milli Persaflóa og Ómanflóa verði til þess að olíuverð haldi áfram að hækka. Um tuttugu prósent af olíu heimsins er flutt um sundið. Lokun Hormússunds haft mikil áhrif Heimsmarkaðsverð hráolíu hefur náð nýjum hæðum eftir að stríð hófst í Mið-Austurlöndum í þarsíðustu viku, en tunnan fór yfir hundrað dollara í dag . Hækkunin hefur þegar haft áhrif hér á landi – eldsneyti hefur hækkað víða um nokkrar krónur síðustu daga. Brynjólfur Stefánsson, forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Íslandssjóðum, segir lokun Hormússunds, mikilvægrar siglingaleiðar milli Persaflóa og Ómanflóa, í síðustu viku þegar hafa haft mikil áhrif. Um fimmtungur af olíu heimsins er flutt um sundið. „Þetta hefur náttúrulega verið helsta vopn Íran hingað til, að loka Hormússundi. Þeir hafa hótað því oft áður og öll umræða um olíu og olíuinnviði hefur snúist um það hvort þeir muni beita þessu vopni. Þannig að nú þegar þeir eru farnir að beita því og loka því geta þeir bara haft áhrif á það hvernig þessar viðræður halda áfram og hvort þeir eða Bandaríkjamenn ná sínum markmiðum.“ Getur haft mjög mikil og neikvæð áhrif Verðbólga hér á landi hefur verið þrálát síðustu misseri og stýrivextir hafa verið lækkaðir mun hægar en vonir stóðu til. Brynjólfur segir hærra olíuverð í slíku ástandi ekki góðar fréttir. „ Og þetta er innflutt verðbólga. En að sama skapi hefur þetta bara bein áhrif inn í verðbólgumælingarnar. Þetta náttúrulega bara hækkar kostnað fólks í sínum daglega rekstri og kaupum á olíu,“ segir Brynjólfur, og heldur áfram. „En síðan eru stórar atvinnugreinar sem þetta skiptir mjög miklu máli fyrir. Þar má nefna ferðaþjónustuna, sjávarútveginn og náttúrulega skipaflutninga. Þannig það má alveg búast við því að ef olíuverðið helst áfram hátt og á þessum verðum þá getur þetta haft mjög mikil og neikvæð áhrif. “ Jafnvægi á markaði náist með opnun Brynjólfur segir lykilatriði að Hormússund verði opnað svo hægt verði að ná jafnvægi á markaði. Haldist sundið áfram lokað sé útlit fyrir að olíuverð haldi áfram að hækka. „Það sem markaðurinn horfir svolítið til þessa dagana er hvort það sé einhver diplómatísk lausn í sjónmáli. Það er annars vegar það og hins vegar sú staðreynd að ríki heims eru að koma saman og íhuga það að losa um varabirgðir. Það gæti haft dempandi áhrif, en svona til lengri tíma er algjört lykilatriði að Hormonssund opnist til þess að það náist einhvers konar jafnvægi og olíuverð lækki,“ segir Brynjólfur. „En ef staðan heldur áfram eins og hún er í dag og dregst eitthvað þá megum við búast við því að olíuverð haldi áfram að hækka.“ Forstöðumaður hjá Íslandssjóðum segir opnun Hormússunds, milli Persaflóa og Ómanflóa, lykilatriði svo jafnvægi náist á olíumarkaði og verð lækki. Um fimmtungur allrar olíu heimsins er flutt um sundið.

Share this article