Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íranski byltingarvörðurinn segir það sitt hlutverk að ákveða hvenær stríðinu ljúki

Read Full Article →

Íranski byltingarvörðurinn segir það vera sitt hlutverk að ákveða hvenær stríðinu í Mið-Austurlöndum ljúki eftir yfirlýsingu Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að senn sæi fyrir endann á því. Þó væri ekki útlit fyrir það á næstu dögum enda hefðu Bandaríkin ekki enn náð fullnaðarsigri. Talsmaður byltingarvarðarins sagði yfirlýsingar Trumps hreinan þvætting og bætti við að ekki yrði heimilað að flytja dropa af olíu frá Mið-Austurlöndum meðan Bandaríkin og Ísrael halda uppteknum hætti við árásir á Íran. Hugmyndir um að slaka á þvingunum gegn Rússum Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður íhuga að slaka á þvingunaraðgerðum sem beinast að olíuviðskiptum Rússlands. Tilgangurinn sé að halda aftur af olíuverðshækkunum þegar stríði Bandaríkjanna og Ísrael lýkur. Reuters greinir frá þessu og vitnar í fjölda heimildarmanna kunnugum málinu. Jafnframt er sagt að Trump hyggist heimila notkun varabirgða olíu í landinu. Forsetinn er sagður óttast að hækkandi olíuverð skaði heimili og fyrirtæki í landinu í aðdraganda þingkosninga á miðju kjörtímabili hans í nóvember. Repúblikanaflokknum er mjög í mun að halda þingmeirihluta sínum. Verð á hráolíu lækkaði um næstum sex af hundraði á Bandaríkjamarkaði eftir óvænta yfirlýsingu Trumps að stríðinu gegn Íran lyki senn. Í kvöld var tunnan af West Texas Intermediate komin niður í rúma 89 bandaríkjadali á tunnuna eftir að hafa farið yfir 119 dali fyrr í dag. Verð á Brent-Norðursjávarolíu var einnig svipað framan af degi uns það lækkaði einnig. Olíuverð hefur sveiflast talsvert frá upphafi átakanna fyrir rúmri viku af ótta við eldsneytisskort.

Share this article